Af hverju glotti frú Hagalín að – „svo gott sem 100% slagsíðu Rúv“

Hallur Hallsson skrifar:
Það lá vel á Sigríði Hagalín Björnsdóttur fréttakonu í gær, 08.06.2026. Evrópusinnar voru í öllum sætum í síðasta Silfri sumarsins. Sjaldan höfðu viðbrögð verið jafn hörð og gagnrýnin beitt fyrr um daginn þegar Rúv birti nöfn viðmælenda. Samt glotti frú Hagalín og fitjaði upp á nefið þegar hún tilkynnti nöfnin í fréttum Rúv. Þjóðin fékk að sjá púka hennar. Svona forherðist Rúv í Evrópudaðri sínu. Hroki og heimsendaspár eiga heimilisfesti á Efstaleiti.
Svo gott sem 100% slagsíða
Hjörtur J. Guðmundsson mesti fræðimaður landsins um Evrópusambandið skrifaði um val viðmælenda: “Svo gott sem 100% slagsíða ... Er fólk í Efstaleitinu virkilega hissa á gagnrýninni.“ Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður XD skrifaði: “Þetta er með hreinum ólíkindum.“ Diljá Mist Einarsdóttir þingkona skrifaði: “Ótrúlegt.“ Haraldur Ólafsson formaður Heimsýnar kvartaði til útvarpsstjóra Stefáns Eiríkssonar og Stefáns Hafstein formanns Útvarpsráðs. Stefán Einar Stefánsson á Mbl. skrifar um “...valdníðslu ríkisfjömiðilsins sem í þokkabót þiggur tugi milljóna í fjárstyrki frá ESB um þessar mundir.“Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins skrifar: “Það er augljóst í hvað stefnir í sumar.“ Þarna kemur SDG að kjarna máls. Ríkisstjórnin sendir Alþingi í frí, tekur pólitíska umræðu úr sambandi og ætlar Rúv og Sýn að afvegaleiða og blekkja þjóðina í sumar.
Icesave og RÚV
Munið árið 2010 þegar þjóðin átti að taka á sig mörg hundruð milljarða Icesave-skuldir. Ólafur Ragnar Grímsson forseti vísaði Icesave til þjóðarinnar. Rúv puðaði og puðaði til að fá þjóðina til þess að greiða skuldir “óreiðumanna.“ Hver var niðurstaða Icesave-kosninga No. 1? 98.1% sögðu NEI. 1.9% sögðu JÁ. Innan við 2% landsmanna voru sammála Rúv. Íslenska þjóðin fékk 1050 milljarða króna skaðabætur frá þrotabúum bankanna af því Ísland var utan Esb. Í Icesave-deilum spáðu prófessorar og fræðimenn fjöldagjaldþrotum. Ísland yrði Kúba norðursins eða jafnvel N-Kórea.
