„Af hverju eru svona margir að selja miðana á tónleikana á Þingvöllum um helgina??“ Svona hljómar færsla sem birtist á Facebook-hópnum Mæðra tips! í dag þar sem miklar umræður sköpuðust um tónleika Kaleo á Þingvöllum um helgina.
„Reglurnar, rútuverð, vesen að komast ekkert frá 15–24 þegar þetta er svo bara í opinni dagskrá á Símanum,“ segir einn nafnlaus notandi en það var nýverið auglýst að tónleikarnir yrðu í beinu streymi á sjónvarpsstöð Símans.
„Galið að þetta sé sýnt í beinni útsendingu og það kynnt eftir að miðasala hefst.“
Ósátt með reglurnar
Þá nefndu margir reglurnar sem verða í gildi á tónleikunum en ekki má taka með sér tjöld eða tjaldstóla. Var það gert af öryggisástæðum að beiðni lögreglu.
Þá er gestum einnig óheimilt að mæta með mat og drykki, þar með talið áfengi.
„Þessar fasistalegu reglur um hvað megi mæta með eru að drepa þetta. Alveg verið að koma í veg fyrir hefðbundna útilegustemningu,“ skrifaði einn.
„Stærstu vörusvik ever!“
„Fráhrindandi reglurnar hef ég lesið frá mörgum og dýrir miðar í rúturnar,“ skrifar einn undir færsluna en rútumiðar til og frá Þingvöllum kosta 8.900 krónur.
„Stærstu vörusvik ever!“ skrifaði einn nafnlaus notandi á Facebook. „Margir hafa eflaust vonast eftir útilegustemningu, geta smurt sér nesti og tekið drykki með sér sem og tjaldstól til að njóta í íslenskri náttúru. Eins og þetta lítur út núna skaltu bara taka nóg af peningum með og vona það besta.“
Margir netverjar segjast vera að selja miðana vegna þess að þeir komist ekki á tónleikana. Sumir í athugasemdum vildu meina að þeir sem hefðu fengið frímiða væru nú að reyna að selja þá.
Ekki allir á sama máli
Einhverjir netverjar tóku upp hanskann fyrir skipuleggjendur tónleikanna.
„Þetta eru bókstaflega sömu reglur og á öllum útihátíðum útum allan heim,“ skrifar einn í athugasemd.
„Ég vona að þeir sem fari nái að njóta vel að horfa á þessa flottu hljómsveit í Þjóðgarðinum okkar,“ segir einn. „Höldum fast í þetta reddast hugafarið góða,“
Burtséð frá þessu greindi mbl.is frá því í morgun að búið væri að selja nærri 20.000 miða á tónleikana og því ljóst að mikið verður um dýrðir á Þingvöllum um helgina.