Af hverju er börnum sagt að þau séu í röngum líkama?

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Hópurinn Drenglyndi heldur út heimasíðu; Drenglyndi.is
Á síðunni má finna alls konar fróðleik og greinar. Í færslunni í dag veltir hópurinn fyrir sér hvort Öryrkjabandalagið segi fötluðum börnum að þau sé fædd í röngum líkama. Heldur bandalagið kannski líka fram að fötluð börn geti skipt um líkama? Kannski að Örykjabandalagið geti svarað því.
Öryrkjabandalagið er baráttu- og hagsmunafélag fatlaðs fólks. Dytti einhverjum manni í hug að hleypa þeim inn í skólana til að segja börnum að fötluð börn séu eða hafi fæðst í röngum líkama?
Eins og segir á síðu Drenglyndis:
„Undanfarið hefur umræða skapast um „fræðslu“ trans Samtakanna 78 í skólum landsins. Margir eru á móti en tjá það því miður ekki. Foreldrar leggja ekki í skólastjórnedur sem hafa frasa á reiðum höndum um dásemdina sem þetta er.
Eitt af því sem S78 tala um, er að börn séu fædd í röngum líkama. Hvernig er það möguleiki? Eru börnin ekki nógu góð eins og þau eru? Hvernig er möguleiki að skipta um líkama?
Segir Öryrkjabandalagið fötluðum börnum að þau séu fædd í röngum líkama? Og, að þau geti skipt um líkama? Nei af því Öryrkjabandalagið veit það. Líkama verður ekki skipt út. Samt styður bandalagið S78 í málflutningi sínum; að barn geti verið fætt í röngum líkama.
Það fæðist enginn í röngum líkama, því hann verður að duga þér frá getnaði til dauða.
Segja barnalæknar við börn sem glíma við átröskun að þau eigi bara að fara í megrun? Nei svo sannarlega ekki, því það læknar ekki sjúkdóminn.
Segja heilbrigðisstarfsmenn feitu barni að borða meira skyndibita og sætindi? Að sjálfsögðu ekki, þeir beina barninu að hollum mat.
Þegar börn glíma við sjálfsmyndaróreiðu segir þú þá barni að það sé fætt í röngum líkama? Nei alls ekki, það er mannvonska að koma því inn í kollinn á barni sem glímir við eigin sjálfsmynd. Því ógerlega er komið inn hjá barni.
Hvenær nær skynsemin tökum á fólki?“