Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjávarúteg geti það haft neikvæð áhrif á fiskvinnslu í landinu.
Evrópskir eigendur gætu einfaldlega tekið ákvörðun um að landa aflanum í öðrum löndum þar sem launakostnaður væri lægri. Þetta var á meðal þess sem rætt var í þættinum Sama viðtalið um ESB.
Aðspurð hvort ekki væri ósamræmi fólgið í því að íslensk fyrirtæki gætu fjárfest í sjávarútvegi í öðrum löndum en ekki öfugt, sagði Heiðrún að þessar fjárfestingar væru umdeildar.
Það að önnur ríki hefðu innleitt vonda stefnu væri ekki góð ástæða til að flytja þau mistök til landsins. Betur færi á því að íslenskar útgerðir yrðu áfram í íslenskri eigu.
Erlend fiskeldisfyritæki komu með þekkingu til landsins
Heiðrún sagði jafnframt að ekki væri hægt að bera þetta saman við fiskeldisfyrirtæki á Íslandi sem væru mörg hver í erlendri eigu. Þar hefðu erlendir aðilar tekið áhættu og flutt inn þekkingu og reynslu til að aðstoða Íslendinga við að byggja upp iðnað. Ekki væri sama nauðsyn á því varðandi hefðbundna útgerð þar sem Íslendingar stæðu framar öðrum þjóðum.
Hún ræddi líka um flókna samninga við önnur strandríki um svo kallaða flökkustofna. Hún hefði sjálf tekið þátt í þeim samningaviðræðum og flækjustigið væri ekki síst það að bíða þyrfti á meðan Evrópusambandsríki semdu innbyrðis.
Nær engar líkur væru á því að Ísland gæti áfram veitt jafn mikið út flökkustofnum eftir inngöngu í ESB. Þá gæti ESB notað þennan kvóta sem skiptiminnt, til dæmis væri hægt að auka hlut Norðmanna í stað þorskkbóta í Barentshafi. Sá þorskkvóti kæmi ólíklega allur til Íslendinga.
Uppáhalds kvótakóngurinn
Patrekur spurði Heiðrúnu hver uppáhalds kvótakóngurinn hennar væri. Hún sagðist eiga erfitt með að svara því enda væru flest sjávarútvegsfyrirtæki í fjölskyldueigu þar sem kynslóðirnar væru vanar því að byrja á gólfinu og ganga í öll störf. En hún hefði þó sérstaklega gaman að fólkinu á Snæfellsnesi. Þau gæfu ekkert eftir og stæðu reglulega uppi í hárinu á henni.