Feðgarnir Friðrik Þórðarson og Leó Friðriksson hafa skellt sér í sund í 92 sundlaugum landsins og stefna á að dýfa sér í þær allar.
„Þetta er skemmtilegt feðgaverkefni,“ segir Friðrik.
Hann segir hugmyndina hafa kviknað eftir að feðgarnir fóru fyrir um tveimur árum að skrásetja sundlaugarnar sem þeir höfðu heimsótt á síðunni sundlaugar.com þar sem 127 sundlaugar landsins eru skráðar.
Sundlaugin í Flókalundi áskorun
„Þetta var fyrst svona að skrá sundlaugar sem við fórum í að gamni en svo þróaðist þetta út í það að okkur langaði bara að reyna að fara í allar,“ segir Friðrik.
Haldi þeir áfram af sama krafti telur hann þá geta klárað sundlaugarnar á næsta ári. Flestar sundlaugarnar sem þeir eiga eftir eru í akstursfæri frá höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta er allt svona í akstursfæri fyrir sunnudagsbíltúr bara.“
Auk þeirra eiga feðgarnir eftir Hvolsvöll, Grímsey og Hrísey og eina sundlaug á Vestfjörðum. Það er laugin í Flókalundi sem margir með sama markmið og feðgarnir ergja sig á að sé nú lokuð almenningi en til þess að komast í hana er skilyrði að vera gestur í sumarbústaðahverfi í nágrenninu.
Allar laugar hafa sinn sjarma
Spurður hvort einhverjar laugar standi upp úr segir Friðrik erfitt að velja.
„Þær hafa allar svona sinn sjarma á sinn hátt. Sumar eru náttúrulega mjög gamlar og mjög skemmtilegt að koma í þær og svo eru aðrar glænýjar með flottum heitum pottum og sánum og flottum rennibrautum og svona sem er svolítið aðdráttarafl fyrir strákinn sem er átta að verða níu ára í sumar.“
Hann segir son sinn þó ekki síður hrifinn af gömlu sundlaugunum. Sama hvert þeir fari sé yfirleitt erfitt að ná Leó upp úr.