Verkalýðshreyfingin segir að stjórnvöld og atvinnurekendur verði að axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. Að öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp.
Í grein sem sex forystumenn í hreyfingunni skrifa í dag segir að núgildandi kjarasamningar hafi verið gerðir á grundvelli loforða sem áttu að lækka verðbólgu og vexti. Þau loforð hafi verið þverbrotin.
Samningarnir voru undirritaðir í mars 2024 og gilda út janúar 2028. Hins vegar er hægt að segja þeim upp í lok mánaðar ef verðbólga mælist yfir 4,7% við næstu verðbólgumælingu, sem von er á 27. ágúst. Allar líkur eru á að verðbólgan verði yfir mörkunum.
„Við höfum kallað eftir því að ríki og sveitarfélög skuldbindi sig til að frysta sínar gjaldskrár. Þau hækka gjaldskrár að lágmarki í samræmi við verðbólgu. Þetta verður bara spírall og gerir það að verkum að verðbólgan viðheldur sjálfri sér,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Hún nefnir sérstaklega mikla hækkun hjá Veitum.
Laun samkvæmt kjarasamningum hafa hækkað um 10% frá því samningar voru undirritaðir snemma árs 2024. Á sama tíma hefur verðlag hækkað um 12%. Þá hafa stýrivextir haldist háir.
„Við erum búin að vera með næstum fjögur ár af gríðarháum stýrivöxtum sem virka að takmörkuðu leyti á þann vanda sem þeim er ætlað að virka á. Vextirnir en eru hins vegar að kreista sömu hópana árum saman, einkum þá sem eru með háar húsnæðisskuldir,“ segir Halla.