Kastriot og Sævar Örn eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið að skipulagi innflutnings til landsins með gámaflutningaskipinu Dettifossi í eigu Eimskips í apríl.
Tveir skipverjar eru ákærðir fyrir að hafa flutt efnin til landsins en af ákæru og gæsluvarðhaldsúrskurðum má merkja að þeir hafi verið fengnir í innflutninginn en ekki skipulagt hann. Þeir hafa játað sök að hluta en Sævar og Kastriot hafa neitað sök.
Ítarlega er fjallað um ákæruna í fréttinni hér að neðan:
Aðalmeðferðin hófst klukkan 09:15 og áætlað er að hún standi yfir næstu þrjá daga og ljúki síðdegis á föstudag. Vísir mun greina frá því helsta sem þar gerist.