Knattspyrnumaðurinn Thomas Partey er í HM-hópi Gana fyrir mótið í Norður-Ameríku í sumar.
Partey var valinn í hópinn þrátt fyrir að hann hafi verið ákærður fyrir fimm nauðganir og eina kynferðislega áreitni.
Partey hefur leikið með spænska liðinu Villarreal undanfarna mánuði þrátt fyrir ákærurnar en hann var áður hjá Arsenal á Englandi.
Mál Parteys verður tekið fyrir í dómsal í Lundúnum í nóvember næstkomandi.