14 voru drepnir og 22 særðust í árásum Rússlandshers á Kænugarð og nágrenni í nótt. Loftvarnarflautur ómuðu í borginni í yfir klukkustund á meðan fjöldi flugskeyta hæfði borgina og útjaðar hennar.
Hermálayfirvöld borgarinnar segja að bæði vöru- og íbúðarhús hafi eyðilagst í árásinni. „Enn á ný gerir óvinurinn árásir á almenna borgara og borgaralega innviði af ásettu ráði,“ segir í tilkynningu þeirra.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir að árásirnar hafi beinst að birgðastöðvum og miðstöðvum fyrir flutninga í og við Kænugarð. Skotmörkin hafi tengst framleiðslu, geymslu og dreifingu á hergögnum Úkraínuhers. Þá segir ráðuneytið að herinn hafi einnig hæft þrjú flutningaskip nærri hafnarborginni Odessu. Þau hafi flutt vopn og önnur hergögn.
Vitali Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi fólks gæti verið fastur í rústum húsa eftir árásir á miðborgina.
Rússlandsher hefur hert árásir sínar á úkraínsku höfuðborgina á síðustu vikum. Úkraínuher hefur einnig sett aukinn kraft í árásir á borgaralega innviði í Rússlandi, þar á meðal orkuver. Þá hefur herinn ítrekað gert árásir á vöruhús netverslunarrisans Wildberries.