Um 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss í Þjórsárdal þegar göngumaður fótbrotnaði í gær. Fjarskiptasveit og undanfarar, sem er hópur sérhæfðs björgunarfólks, voru þar á meðal. Sjö manna hópur bar manninn niður af gönguleiðinni.
Þetta kemur fram í samtali mbl.is við Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Hann segir hluta viðbragðsaðila þó hafa snúið við á leiðinni á vettvang þar sem ekki þurfti á aðstoð þeirra að halda.
Gloppótt samband á svæðinu
„Hann var á erfiðum stað hvað varðar að bera hann. Það var ákveðið að kalla til frekari aðstoð, þar á meðal af höfuðborgarsvæðinu þaðan sem kallaðir voru út undanfarar,“ segir Jón.
Sérstakur fjarskiptahópur var einnig kallaður út þar sem fjarskiptasamband á svæðinu er gloppótt. Svartir blettir eru í svokölluðu „Tetra-kerfi“ eða talstöðvarkerfi viðbragðsaðila á þessum slóðum, að sögn Jóns. Björgunarsveitin í Hafnarfirði aðstoðaði með sérstökum fjarskiptahópi.
Auknar vinsældir við Háafoss
Háifoss gæti orðið einn af vinsælustu ferðamannastöðum erlendra ferðamanna á næstu árum. Það gaf Ferðamálastofa út nýverið. Væntingar til aukinna vinsælda á svæðinu hefur hún sagt að megi rekja til sjónvarpsþáttaraðarinnar Stranger Things en fossinn kemur fyrir í lokaatriði þáttanna.
„Ég veit að mitt fólk í Safetravel er með augun á þessu og er að velta fyrir sér hvort þurfi að grípa til einhverra ráðstafana, eins og að koma upp einhverjum merkingum,“ segir Jón. Safetravel er rekið af Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Björgunarsveitin Sigurgeir var meðal þeirra sem tóku þátt í aðgerðunum.


