Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í tíu í gærkvöld. Hún er um 50 kílómetra suðvestur af Edley.
Stærstu skjálftar hrinunnar voru 3,2 og 3,1 að stærð. Alls hafa tæplega 50 skjálftar mælst frá því hrinan hófst. Hlé hafa orðið inn á milli í hrinunni.
Síðasta hrina á þessum slóðum varð 25. júlí. Jarðskjálftahrinur eru algengar á flekaskilum sem hryggurinn liggur á.