Fluglitakóði fyrir Bárðarbungu verður enn gulur á meðan óvissa varir um framhaldið.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að um 400 skjálftar hafi mælst í Bárðarbungu frá því að hrinan hófst eftir klukkan átta í gærkvöldi.
Stærsti skjálftinn var af stærðinni 4,8. Jarðskjálftavirkni var mest fram til um þrjú í nótt.
Kortið sýnir staðsetningu og stærð jarðskjálfta í Bárðarbungu síðustu 12 klukkutímana, frá kl. 21 þann 13. Júní 2026. Svarti hringurinn táknar staðsetningu öskjunnar.
Kort/Veðurstofa Íslands
Virkni enn á svæðinu
Jarðskjálftavirkni mælist enn á svæðinu þó að hrinan sé í rénun.
„Of snemmt er að segja til um hvort hrinan sé að fjara út,“ segir í tilkynningunni.
Síðast varð sambærileg jarðskjálftahrina í Bárðarbungu í janúar 2025.
