Alls voru 155 börn og fullorðnir drepin í árás Bandaríkjamanna og Ísraela á grunnskóla í Minab í Íran 28. febrúar. Áður hafði verið greint frá því að 175 hefðu verið drepin í árásinni en íranski ríkisfjölmiðillinn IRIB og fleiri íranskir fjölmiðlar greindur frá þessum nýju upplýsingum um árásina í gær.
73 drengir, 47 stúlkur, 26 kennarar, sjö foreldrar, skólabílstjóri og starfsmaður í heilsugæslu við hlið skólans voru drepnir í árásinni. Bandarísku Tomahawk-flugskeyti var skotið á skólann á fyrsta degi stríðsins í Mið-Austurlöndum sem ekki er enn formlega lokið.
Bandarísk stjórnvöld segja að vegna mistaka hafi flugskeytið lent á grunnskólum, eftir því sem bráðabirgðaniðurstöður bandaríska hersins benda til. Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf áður í skyn að mögulega bæru Íranar sjálfir ábyrgð á árásinni, þrátt fyrir að þeir eigi ekki Tomahawk-flugskeyti.
Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, hefur áður sagt að árás Bandaríkjahers á skólann í Minab sé stríðsglæpur.