Í kringum tólf þúsund manns hafa þurft að flýja skógarelda sem loga í suðvesturhluta Frakklands. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir staðaryfirvöldum.
Í morgun voru sjö þúsund manns flutt á brott úr íbúðahverfi og af sex tjaldsvæðum norðan við Cap Ferret. Það er vinsæll áfangastaður ferðamanna á vesturströnd Frakklands, skammt frá Bordeaux.
20 þúsund hektarar, eða 200 ferkílómetrar, hafa brunnið í eldunum sem loga í suðvesturhluta landsins.