Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu kom til Évian-les-Bains í Frakklandi í morgun til að sitja fyrsta formlega fund dagsins á leiðtogafundi G7-ríkjanna sem hófst í gær. Umræðuefnið er hvernig eigi að byggja upp frið og öryggi í Úkraínu.
Zelensky vill að ríkin auki þrýsting á Rússa að hætta stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Til þess hefur hann stuðning fulltrúa Evrópu í þessum hópi - Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Bretlands og Evrópusambandsins sem hefur áheyrn á fundinum, sem og stuðning Japans og Kanada. Ekki er eins skýrt hvar Bandaríkin standa.
Zelensky skoraði í gær á G7-ríkin að bregðast ákveðið og af festu við síðustu árásum Rússa. Þar voru 11 drepnir og yfir þúsund ára gamalt klaustur á heimsminjaskrá sprengt. Hann sagðist jafnframt hafa lagt til að hann og Vladimír Pútín forseti Rússlands hittust á fundinum, en rússnesk stjórnvöld hefðu ekki verið tilbúin til þess.
Reynt að fá stuðning Bandaríkjanna
Búist er við að Evrópuleiðtogar minni Donald Trump forseta Bandaríkjanna á mikilvægi þess að Rússar semji um frið á forsendum Úkraínu og að ekki verði þrýst á Úkraínumenn að samþykkja kröfur af hálfu Rússa. Tillögur hans fram að þessu hafi verið Rússum of mikið í hag. Emmanuel Macron ætlar að koma á tvíhliða fundi Trumps og Zelenskys í þeim tilgangi að fá stuðning Trumps í stríðinu.
Trump sagði þegar hann kom til fundarins í gær að kannski væri hægt að gera eitthvað í málefnum Úkraínu. Hann hafði þá talað við bæði Zelensky og Pútín í síma og sagt þá báða opna fyrir slíku án þess að segja neitt um það efnislega.