Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er kominn til Serbíu til viðræðna við forsetann Aleksandar Vučić og forsætisráðherrann Djuro Macut. Zelensky sagðist í færslu á Telegram í gær ætla að ræða efnahagssamvinnu landanna, varnar- og öryggismál og samskiptin við Evrópusambandið.
Vučić sagðist í aðdraganda heimsóknarinnar auk annars ætla að ræða aðildarumsókn beggja landanna við Zelensky og þær leiðir sem við þeim blasi. Serbía er eitt fárra Evrópuríkja sem haldið hafa vinfengi við Rússa eftir að innrásin hófst þótt forsetinn hafi undanfarið reynt að bæta tengslin við Úkraínumenn.
Vučić hefur meðal annars heitið aðstoð við uppbyggingu að stríði loknu og fékk skömm í hattinn frá Rússum fyrir að afhenda Úkraínumönnum vopn með milligöngu Atlantshafsbandalagsins.
Umsókn Serbíu hefur tafist vegna þess að ríkisstjórn Vučićs hefur harðneitað að taka þátt í alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússum vegna sögulegra tengsla landanna og hyggst ekki breyta þeirri afstöðu. Serbar reiða sig til dæmis nær eingöngu á rússneska orku.
Evrópusambandið hefur hótað að draga úr greiðslum til Serbíu vegna afstöðunnar til Rússlands og ekki síður vegna hnignandi stöðu lýðræðis undir stjórn Vučić. Hann hefur fundað nokkrum sinnum með Zelensky frá upphafi innrásarinnar.
Reglulega hefur verið mótmælt í Serbíu eftir að 16 létust þegar steinsteypt þak á lestarstöð hrundi í borginni Novi Sad í nóvember 2024. S
túdentar hafa leitt mótmælin og kölluðu upphaflega eftir því að gerð yrði ítarleg rannsókn á slysinu. Margir hafa kennt spillingu og vanrækslu stjórnvalda um harmleikinn og Vučić sjálfur legið undir þungu ámæli.