Yfir 2 milljónir hermanna hafa fallið, særst eða er saknað eftir átök milli Rússa og Úkraínumanna frá því að innrás Rússa hófst í Úkraínu í febrúar 2022.
Bandaríska hugveitan The Center for Strategic and International Studies (CSIS) áætlar að á milli 400.000-450.000 hermenn Rússa hafi fallið en alls hafi 1,4 hermenn Rússa fallið, særst eða sé saknað.
Þá telur CSIS að á milli 125.000-150.000 úkraínskir hermenn hafi fallið á sama tímabili. Alls hafi á milli 525.000-625.000 úkraínskir hermenn fallið, særst eða þeirra sé saknað.
Samanlagt sé fjöldi fallinna, særðra eða þeirra sem saknað er því yfir 2 milljónir hermanna úr röðum Rússa og Úkraínumanna.
Hugveitan segir að mannfall Rússa í Úkraínu sé meira en fjórum sinnum meira en allt mannfall bandarískra hermanna samanlagt í öllum stríðum síðan í síðari heimsstyrjöld.
Þá hefur hlutfall mannfalls í röðum rússneskra og úkraínskra hermanna hækkað á fyrri helmingi þessa árs og er nú um 8 á móti 1.