Myndband af hættulegum framúrakstri vörubíls hefur verið birt í Facebook hópnum Fávitar í umferðinni.
Á myndbandinu sést vörubíll taka fram úr fjórum hjólreiðamönnum. Vörubíllinn fer yfir á rangan vegarhelming þrátt fyrir að fólksbíll komi úr gagnstæðri átt.
Ökumaður fólksbílsins nær að stöðva bifreiðina rétt áður en ökutækin mætast og þannig koma í veg fyrir árekstur.
Segist hafa þurft að snögghemla
Í færslunni kemur fram að ökumaður fólksbílsins hafi þurft að snögghemla og hafi óttast að þrír bílar, sem óku fyrir aftan, myndu aka aftan á bifreiðina.
„Ég var heppin að fá ekki þá þrjá bíla sem voru fyrir aftan mig á mig þegar ég snöggbremsaði,“ segir í færslunni.
Þar er jafnframt tekið fram að vörubílstjórinn hafi virt reglur um að halda að minnsta kosti 1,5 metra fjarlægð frá hjólreiðamönnum við framúraksturinn. Framúraksturinn hafi hins vegar verið framkvæmdur þrátt fyrir að umferð væri að koma á móti.
Eigandinn taldi málið úr sögunni
Ökumaðurinn segist hafa haft samband við eiganda vörubílsins eftir atvikið.
Að sögn ökumannsins gerði eigandinn lítið úr málinu og sagði að þar sem tekist hefði að afstýra árekstri og ekkert slys orðið væri ekki ástæða til að ræða málið frekar.