Athafnamaðurinn Jim Ratcliffe afhenti í gær samfélaginu á Vopnafirði 17 manna Ford Transit-rútu. Rútan kemur til með að nýtast Eldriborgarafélaginu og knattspyrnufélagi staðarins, Einherja.
Um er að ræða gjöf frá Six Rivers Foundation, sem Ratcliffe stendur að, og var hún afhent við athöfn í Vallarhúsinu, félagsheimili Einherja, í dag. Íris Jónsdóttir, bæjarstjóri á Vopnafirði, áréttaði í samtali við mbl.is að gjöfin væri ekki til sveitarfélagsins heldur samfélagsins.
Lyklarnir í góðum höndum
Aðspurð um hver muni geyma lyklana að rútunni sagði hún: „Það kemur í ljós. En pottþétt í góðum höndum,“ sagði hún kímin.
Viðstaddir afhendinguna voru fulltrúar úr stjórn og ráðum Einherja, Eldriborgarafélaginu og sveitarstjórn. Rútan er sögð ætluð til afnota fyrir samfélagið og mun styrkja möguleika íbúa og félagasamtaka til samgangna og þátttöku í fjölbreyttri starfsemi.
Afhendingin markar mikilvægan áfanga fyrir samfélagið og ríkti ánægja meðal gesta með að sjá verkefnið verða að veruleika. Fulltrúar Einherja sögðu rútuna vera kærkomna viðbót sem muni nýtast vel á komandi árum og efla starf félagsins og samfélagsins í heild.
Einherji færði Six Rivers Foundation innilegar þakkir í Facebook-færslu þar sem gjöfin var kynnt fyrr í dag.
Sjóður fyrir samfélagsverkefni
Six Rivers Foundation starfar að verndun og endurheimt náttúru á tveimur svæðum: í norðausturhluta Íslands og í Tansaníu. Megináherslan á Íslandi er vernd og efling stofna villtra Atlantshafslaxa og vistkerfa ánna.
Stofnunin er sögð vinna með heimamönnum að uppbyggingu sjálfbærrar ferðaþjónustu og samfélagsverkefna sem styðja náttúruvernd og atvinnulíf á svæðunum.