Kópavogsbær er ekki kominn með yfirsýn yfir hvernig grunnskólar bæjarins standa í samanburði við skóla annarra sveitarfélaga þrátt fyrir að matsferill hafi verið lagður fyrir grunnskólanema í stærðfræði og íslensku í vor.
Þetta segir Karen Rúnarsdóttir, nýr formaður menntaráðs Kópavogsbæjar, í Síðdegisútvarpinu.
Stefnumótandi aðilar eiga að geta fylgst með
Matsferill er stöðu- og framvindupróf sem ætlað var að leysa gömlu samræmdu könnunarprófin af hólmi. Hann hefur verið í þróun í árabil en síðast voru samræmd könnunarpróf lögð fyrir grunnskólabörn á Íslandi árið 2021.
Á vefsíðu Miðstövar menntunar og skólaþjónustu segir að auk þess að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar upplýsingar um stöðu og framfarir grunnskólabarna, eigi matsferillinn að veita skólum, sveitarfélögum og menntayfirvöldum skýra mynd af stöðunni í stærra samhengi.
Þá segir á vefsíðu Stjórnarráðsins að með matsferlinum eigi stefnumótandi aðilar að geta fylgst betur með þróun námsárangurs yfir tíma, greint styrkleika og mögulegar áskoranir til þess að geta síðan lagt til menntaumbætur.
Nýtt skólaár hafið
Matsferill í lesskilningi og stærðfræði var lagður fyrir grunnskólabörn í mars og gátu foreldrar nálgast niðurstöður barna sinna á Ísland.is í maí.
Nú þegar nýtt skólaár er hafið hefur þó Kópavogsbær ekki fengið heildstæðar upplýsingar um niðurstöður skóla sinna í samanburði við landið.
„Nei, við erum ekki með heildstæða yfirsýn yfir það hvar okkar sveitarfélag stendur í samanburði við önnur,“ segir Karen í Síðdegisútvarpinu.
„Í byrjun sumars lágu fyrir gögn um hvern og einn nemanda, eða sem sagt það var hægt að fara inn í gögnin eftir nemanda, en það var ekki heildstætt eftir skóla eða niður á sveitarfélagið. Það er miður.“
Hlustaðu á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.