Á hverju ári fer Endurvinnslan á mis við tugi milljóna króna vegna peninga sem ekki skila sér frá framleiðendum og innflytjendum drykkjarvara.
Jón Óskar Hinriksson framkvæmdastjóri segir að fyrirtækið hafi leitað allra leiða til að fá fjármunina greidda án árangurs. Málið komi illa við reksturinn.
Á síðustu fimm árum hafi samtals um 100 milljónir króna ekki fengist greiddar.
Ítrekaður misbrestur
„Endurvinnslukerfið er gegnumstreymiskerfi þar sem Skatturinn sér um innheimtu og borgar okkur. Við greiðum síðan fólki á endurvinnslustöðvunum. Þessir framleiðendur og innflytjendur eiga að borga okkur umsýslugjald lögum samkvæmt og skila okkur svo endurvinnslugjaldinu sem er hluti af verði vörunnar út úr búð. Hjá sumum hefur orðið ítrekaður misbrestur á þessu,“ útskýrir Jón.
Skatturinn innheimtir við innflutning og svo af framleiðendum samkvæmt skilaskýrslum.
„Vandamálið er að vegna persónuverndarlaga má Skatturinn ekki segja okkur hverjir skussarnir eru.“ Jón segir þetta bagalegt. „Það er slæmt að vita hvorki hver kostnaðurinn er né tekjurnar.“
Lesa má nánar um málið á bls.12 í Morgunblaðinu í dag