Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur komist að þeirri niðurstöðu að mögulega hafi lögregla beitt harðræði og að lögreglumaður hafi gerst sekur um refisverða háttsemi við handtöku á Akureyri. Nefndin hefur komist að sams kobar niðurstöðu varðandi aðra handtöku á Akureyri en í báðum málum setti sérsveitarmaður hné sitt á háls hins handtekna.
Vísbendingar um harðræði lögreglu á Akureyri – Úlnliðsbrot og hné á hálsi
Þetta mál varðar handtöku fyrir utan skemmtistað á Akureyri á þjóðhátíðardaginn 17. júní árið 2023 en kvörtun yfir henni var send nefndinni í febrúar síðastliðnum. Tekið var fram í kvörtuninni að til væru myndbandsupptökur af atvikinu en á þeim sjáist hvar maðurinn sem handtekinn var sé „rifinn niður í jörðina“ þrátt fyrir að hafa ekki gerst brotlegur við lög. Sérsveitarmenn hafi svo lagt allan þunga sinn á manninn með því að setja hné í háls hans. Við handtökuna hafi maðurinn orðið fyrir meiðslum og var vottorð frá, bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri, þess efnis lagt fram með kvörtuninni. Samkvæmt vottorðinu var maðurinn undir áhrifum áfengis og kemur fram að hann muni eftir falli og að hafa ekki misst meðvitund. Kom fram að lögreglumaður hafi haldið honum niðri í jörðinni og keyrt hné í bak hans og að rifið hafi verið af honum úr sem hann bar á vinstri hönd.
Leðurvesti
Nefndin leitaði svara hjá lögreglunni á Norðurlandi Eystra. Í svarinu kemur fram að borist hafi tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað á Akureyri. Á vettvangi hafi dyravörður bent á mann sem var með blóðnasir, sjáanlega æstur og í mjög annarlegu ástandi, hafi það reynst vera bróðir mannsins sem lagði kvörtunina fram. Tekið er fram að maðurinn og fleiri á staðnum hafi verið klæddir í leðurvesti sem merkt voru einhverju en hvað það er hefur verið afmáð úr ákvörðun nefndarinnar. Var haft eftir dyraverði að þeim bræðrunum hafi lent saman. Maðurinn hafi verið mjög æstur og öskrað á bróður sinn og mikill mannsöfnuður hafi verið á svæðinu.
Bróðirinn hafi þá verið tekinn í lögreglutök til að fjarlægja hann úr aðstæðum og til viðræðna við lögreglu. Við það hafi maðurinn komið að lögreglumönnum, verið æstur og reynt að losa bróður sinn, sem var á endanum handtekinn, úr tökum lögreglu. Sérsveit ríkislögreglustjóra hafi einnig verið á vettvangi og komið til aðstoðar og fjarlægt manninn. Hafi hann veitt talsverða mótspyrnu við það og því verið handtekinn og fluttur ásamt bróður sínum á lögreglustöðina á Akureyri. Maðurinn hafi brotist um í tökum lögreglu og þurft hafi að að bera hann í fangaklefa og halda honum niðri við öryggisleit. Þegar færa hafi átti armbandsúr af úlnlið hans hafi hann náð að grípa í keðju úrsins og haldið fast í. Við það hafi keðja úrsins slitnað. Þeir bræður hafi báðir látið ófriðlega en loks sofnað. Kært hafi verið fyrir brot gegn áfengislögum, lögreglulögum og almennum hegningarlögum. Rannsókn málsins var hætt.
Maðurinn krafðist í kjölfarið bóta en í bréfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra til Nefndar um eftirlit með lögreglu segir að embættið hafi í umsögn sinni um kröfuna til ríkislögmanns talið að hafna bæri kröfunni. Vildi embættið meina að maðurinn hafi sjálfur stuðlað að handtökunni með háttsemi sinni. Bent var á að embættið hefði ekki aðgang að upptökum úr búkmyndavélum sérsveitarmannanna sem handtóku manninn.
Ríkislögreglustjóri tjáði nefndinni að ekki væri að finna neinar upptökur undir gögnum málsins hjá embættinu en sendi handtökuskýrslu.
Afl og hótanir
Í skýrslunni segir að maðurinn hafi verið æstur og komið alveg upp að sérsveitarmönnunum og ekki hlýtt fyrirmælum um að halda sig í burtu. Hann hafi skipt sér af handtöku á bróður hans og því verið tekinn í lögreglutök. Við það hafi maðurinn orðið enn æstari. Segir því næst í skýrslunni:
„Við þurftum því að leggja hann í jörðina á magann og setja hann í handjárn fyrir aftan bak. [Kvartandi] barðist um og þurfti að beita hann afli til að koma á hann handjárnum. Þegar búið var að handjárna [kvartanda] framkvæmdum við á honum öryggisleit og síðan var hann færður í lögreglubifreiðina sem einnig var komin á vettvang.“
„Þegar komið var með [kvartanda] í fangaklefa streittist hann verulega á móti og þurfti þrjá til fjóra lögreglumenn til að halda honum niðri meðan verið var að leita á honum enn frekar og færa hann úr fatnaði og taka af honum skó, belti og annað slíkt. Þegar verið var að taka af honum armbandsúr slitnaði keðja úrsins þar sem [kvartandi] hélt mjög fast í hana og ætlaði ekki að láta ná af sér úrinu. Þegar verið var að færa [kvartanda] úr vesti sem var merkt áðurnefndum […] varð hann mjög ósáttur og hótaði að drepa lögreglumenn og kom með allskyns svívirðingar í garð lögreglu. Þá reyndi [kvartandi] einnig að hrækja á lögreglumenn sem voru að færa hann í fangaklefa.“
Mögulega refsiverð
Nefnd um eftirlit með lögreglu segir í sinni niðurstöðu að hún hafi farið yfir þau gögn sem bárust frá embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og ríkislögreglustjóra. Ekki sé að finna upptökur af handtöku sérsveitarmanna á manninum hvorki af upphaflegum samskiptum þeirra við hann né flutning hans í fangageymslur. Þó megi sjá á upptöku lögreglumanns embættis lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að hné sérsveitarmanns sé á hálsi mannsins í nokkurn tíma.
Nefndin segir að þar sem ekki séu til staðar upptökur úr búkmyndavélum sérsveitarmanna sem hefðu getað varpað betra ljósi á málsatvik sé ekki hægt að útiloka mögulega refsiverða háttsemi starfsmanns lögreglu. Því beri nefndinni að vísa málinu til héraðssaksóknara.