Vísað frá Íslandi - Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu - DV

Vísað frá Íslandi - Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu - DV

Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa manni, sem er albanskur ríkisborgari, frá landinu. Skýringar mannsins á ferðatilhögun sinni þóttu ótrúverðugar en það þótti ýta enn frekar undir ótrúðverðugleikann að maðurinn hafði í síma sínum svör frá gervigreind um hvernig hann ætti að svara spurningum lögreglu um ferðir sínar.

Manninum var vísað frá landinu í nóvember 2025 en hann kærði ákvörðunina daginn eftir en sama dag fór hann úr landi.

Í samantekt lögreglunnar kom fram að daginn sem maðurinn kom til landsins hafi henni borist símtal frá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Tollvörðum hafi þótt ferðasaga mannsins undarleg og óskað eftir aðstoð lögreglu.

Lögregla tók þá yfir viðræður við manninn. Hann hefði sagst ætla að dvelja í þrjá daga á Íslandi og framvísað flugbókun til Mílanó 13. nóvember 2025 og hótelbókun hér á landi. Hann hafi verið með 1.085 evrur í reiðufé.

Sagan

Aðspurður hefði maðurinn sagt tilgang ferðar sinnar vera að skoða eldfjall, Bláa lónið, hvali og miðbæ Reykjavíkur en hann hefði enn ekki bókað neina afþreyingu hér á landi. Hefði maðurinn sagst ekki hafa komið áður til Íslands og ekki þekkja neinn hér á landi. Sagði lögregla að maðurinn hefði sagst ætla sér mögulega að leigja bílaleigubíl eða koma sér á milli staða með leigubíl eða rútu. Þá hefði hann sagst vera að íhuga að finna einhvern til að ferðast með sér, svo sem ef hann myndi kynnast íslenskri stelpu.

Hefði hann því næst greint frá því að ætla sér að skoða Reykjavík og að hann hafi gleymt að minnast á kirkjuna fyrr í samtalinu. Hann væri ekki með sundföt meðferðis vegna ferðar sinnar í Bláa lónið en ætlað að kaupa sér sundföt hér á landi ef hann þyrfti. Þá hefði hann greint frá því að ætla að skoða eldfjall sem hafi ekki gosið í nokkur ár og talið að það kostaði 180-200 evrur að fara að eldfjallinu.

Hann hafi ekki getað nefnt eldfjallið á nafn en sagst munu finna það með aðstoð staðsetningarforrits. Maðurinn hafi verið klæddur í strigaskó og einungis verið með bakpoka meðferðis. Hann hafi ekki verið með skó til skiptanna og hafi spurt hvort leiðsögumenn gætu ekki útvegað honum búnað.

Gervigreind

Lögregla sagði manninn hafa þá framvísað nokkuð ítarlegri ferðaáætlun sem hann hafi útbúið með gervigreind en þar hafi hvorki komið fram Bláa lónið eða eldfjall en hins vegar komið fram Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Sky Lagoon o.fl. Þar hafi einnig komið fram leiðbeiningar um hvernig hann ætti að svara nánari spurningum um ferðaáætlun sína. Aðspurður hafi maðurinn sagt þetta vera leiðbeiningar ef hann yrði spurður nánar út í ferðasögu sína af lögreglu.

Sagði lögregla að lokum í samantekt sinni að þar sem tilgangur ferðar mannsins hafi þótt ótrúverðugur vegna þess að ferðaáætlun hans innihélt leiðbeiningar um hvernig svara ætti spurningum um ferð hans, auk þess sem fatnaður og farangur hafi ekki verið í samræmi við áætlanir hans, hafi verið tekin ákvörðun um að frávísa honum frá landinu á grundvelli laga um útlendinga. Maðurinn hafi farið með flugi til Mílanó daginn eftir.

Rök

Í kæru mannsins kom meðal annars fram að ákvörðunin væri órökstudd og rannsóknarregla stjórnsýslulaga hafi ekki verið uppfyllt. Sömuleiðis hafi skort á það að lögreglan á Suðurnesjum hafi uppfyllt leiðbeiningarskyldu sína gagnvart manninum.

Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála segir að þegar litið sé til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar mannsins hér á landi og þess að ekkert bendi til þess að hann hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verði ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar hans.

Misræmi

Maðurinn hafi lagt fram nokkuð ítarlega ferðaáætlun sem hann hafi ekki getað gert nánari grein fyrir við afskipti lögreglu, auk þess sem frásögn hans hafi tekið breytingum eftir því sem málinu vatt fram. Við mat á því hvort ferðaáætlun teljist trúverðug og veiti fullnægjandi grundvöll fyrir tilgangi dvalar þurfi að taka mið af öðrum atvikum máls. Almennt verði að gera þá kröfu að útlendingur hafi ákveðna  grunn þekkingu á þeirri ferðaáætlun sem hann byggi ferð sína á.

Misræmi í frásögn mannsin um tilgang ferðar hans, svo sem varðandi eldfjall og fyrirætlanir hans um útivist í nóvember á Íslandi geri tilteknar kröfur til búnaðar, svo sem hlífðarfatnaðar. Ekki hafi verið lögð fram gögn sem sýnt hafi fram á samgöngur innanlands svo sem skipulagðar ferðir eða leigu á bílaleigubifreið. Þá dragi úr trúverðugleika mannsins að ferðaáætlun hans hafi innihaldið leiðbeiningar um hvernig ætti að svara spurningum um ferð hans hingað til lands. Framburður mannsins sé þar af leiðandi óáreiðanlegur. Hafi hann því ekki fært rök fyrir þeim tilgangi sem hann hann hafi gefið upp fyrir dvölinni. Hafi þar af leiðandi skilyrði til frávísunar á grundvelli laga um útlendinga verið uppfyllt og sé ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum staðfest.

Nefndin segir að lögreglan á Suðurnesjum hafi uppfyllt leiðbeiningarskyldu sína gagnvart manninum en skort hafi á rökstuðning og að því leyti hafi ákvörðunin ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög. Sá annmarki á frávísuninni sé þó ekki slíkur að það valdi ógildingu hennar.

#gervigreind #lögreglu #íslandi #leitaði #hvernig


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/20/visad-fra-islandi-leitadi-rada-hja-gervigreind-um-hvernig-svara-aetti-logreglu/

📰 Aðrar fréttir

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið - DV
📅 27.04.2026 07:35:03 👁️ 1

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið - DV

#fréttakonu#myndbandið#mínútna#skammar#donald
UK healthy life expectancy falls by two years in past decade
📅 27.04.2026 07:34:48 👁️ 0

UK healthy life expectancy falls by two years in past decade

#expectancy#healthy#decade#falls#years
Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu
📅 27.04.2026 07:33:29 👁️ 0

Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu

#reykjaneshrygg#bárðarbungu#skelfur#jörð
„Við búum í brjáluðum heimi“ - Vísir
📅 27.04.2026 07:30:21 👁️ 0

„Við búum í brjáluðum heimi“ - Vísir

#brjáluðum#heimi#vísir#búum
„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
📅 27.04.2026 07:20:24 👁️ 0

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“

#breytingar#hagkerfinu#róttækar#viljum#betur
Allhvöss sunnan­átt með rigningu - Vísir
📅 27.04.2026 07:16:46 👁️ 0

Allhvöss sunnan­átt með rigningu - Vísir

#sunnanátt#allhvöss#rigningu#vísir
Up to €21,400 grants now available to renovate homes in the Canary Islands
📅 27.04.2026 07:14:00 👁️ 0

Up to €21,400 grants now available to renovate homes in the Canary Islands

#available#renovate#islands#grants#canary
Hælisleitandi sakfelldur fyrir nauðgun á 14 ára stúlku – Sleppur við fangelsi en þarf að mæta í fræðslu um mörk og samþykki
Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi - DV
📅 27.04.2026 07:12:18 👁️ 0

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi - DV

#stórfellda#líkamsárás#rannsakar#lögregla#tveir
Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar
📅 27.04.2026 07:04:49 👁️ 0

Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar

#líkamsárásar#alvarlegrar#handteknir#tveir#vegna
Blautt og hvasst
📅 27.04.2026 06:56:51 👁️ 0

Blautt og hvasst

#blautt#hvasst
Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt
📅 27.04.2026 06:56:51 👁️ 0

Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt

#hvassviðri#stormur#kvöld#nótt
Caribbean Real Estate Market in 2026: Trends, Opportunities, and Strategies for Investors
📅 27.04.2026 06:54:00 👁️ 2

Caribbean Real Estate Market in 2026: Trends, Opportunities, and Strategies for Investors

#opportunities#strategies#caribbean#investors#estate
Man arrested over attacks on Jewish community in London
📅 27.04.2026 06:53:41 👁️ 0

Man arrested over attacks on Jewish community in London

#community#arrested#attacks#jewish#london
Varð ekki hræddur þegar hann heyrði skothvellina
📅 27.04.2026 06:48:50 👁️ 0

Varð ekki hræddur þegar hann heyrði skothvellina

#skothvellina#hræddur#heyrði#þegar#varð
Tveir hand­teknir í tengslum við stór­fellda líkams­á­rás - Vísir
📅 27.04.2026 06:26:59 👁️ 0

Tveir hand­teknir í tengslum við stór­fellda líkams­á­rás - Vísir

#handteknir#stórfellda#líkamsárás#tengslum#tveir
Drone stops all flights taking off or landing at Lanzarote Airport
📅 27.04.2026 06:11:00 👁️ 0

Drone stops all flights taking off or landing at Lanzarote Airport

#lanzarote#flights#landing#airport#taking
MONDAY WEATHER: Cloudy skies and light showers continue in the Canary Islands
📅 27.04.2026 05:53:00 👁️ 1

MONDAY WEATHER: Cloudy skies and light showers continue in the Canary Islands

#continue#weather#showers#islands#monday
Esther Ghey's dismay over PM meeting social media bosses first
📅 27.04.2026 05:24:03 👁️ 2

Esther Ghey's dismay over PM meeting social media bosses first

#meeting#esther#dismay#social#bosses
10 særðust í árásum í Odesu
📅 27.04.2026 05:12:17 👁️ 3

10 særðust í árásum í Odesu

#særðust#árásum#odesu
Robert Brovdi, Ukraine's drone commander with Russian oil in his sights
📅 27.04.2026 05:03:39 👁️ 3

Robert Brovdi, Ukraine's drone commander with Russian oil in his sights

#commander#ukraine#russian#robert#brovdi
Healthy life expectancy gap between rich and poor has widened
📅 27.04.2026 04:55:50 👁️ 2

Healthy life expectancy gap between rich and poor has widened

#expectancy#healthy#between#widened#life
'I don't want the children to see us worried': UK families feel financial hit of Iran war
📅 27.04.2026 04:55:34 👁️ 2

'I don't want the children to see us worried': UK families feel financial hit of Iran war

#financial#children#families#worried#want
Trump says he 'wasn't worried' during Washington press dinner shooting
📅 27.04.2026 04:24:19 👁️ 3

Trump says he 'wasn't worried' during Washington press dinner shooting

#washington#shooting#worried#during#dinner
Mikil mótmæli í Vilnius gegn frumvarpi um breytingar á lögum um ríkisútvarpið LRT
📅 27.04.2026 03:47:35 👁️ 1

Mikil mótmæli í Vilnius gegn frumvarpi um breytingar á lögum um ríkisútvarpið LRT

#ríkisútvarpið#breytingar#frumvarpi#mótmæli#vilnius
King's visit to 'revitalise' relationship with US
📅 27.04.2026 02:53:25 👁️ 3

King's visit to 'revitalise' relationship with US

#relationship#revitalise#visit#king#with
Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum
📅 27.04.2026 02:15:07 👁️ 1

Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum

#strandgæslan#flóttamönnum#bjargaði#franska
Oil rises as US-Iran peace talks stall
📅 27.04.2026 01:16:50 👁️ 2

Oil rises as US-Iran peace talks stall

#rises#peace#talks#stall#iran
42 drepnir í átökum um vatnsbrunn
📅 27.04.2026 01:10:07 👁️ 2

42 drepnir í átökum um vatnsbrunn

#vatnsbrunn#drepnir#átökum
Araghchi fundar með Pútín í dag
📅 27.04.2026 00:19:52 👁️ 1

Araghchi fundar með Pútín í dag

#araghchi#fundar#pútín
Sendi fjöl­skyldunni lista af skot­mörkum í for­gangs­röð - Vísir
📅 26.04.2026 23:41:35 👁️ 3

Sendi fjöl­skyldunni lista af skot­mörkum í for­gangs­röð - Vísir

#fjölskyldunni#forgangsröð#skotmörkum#sendi#lista
UK's biggest environmental pollution claim reaches High Court
📅 26.04.2026 23:01:47 👁️ 3

UK's biggest environmental pollution claim reaches High Court

#environmental#pollution#biggest#reaches#claim
Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu - Vísir
📅 26.04.2026 22:40:26 👁️ 2

Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu - Vísir

#oddvitarimmu#framíkalli#svarað#vísir#poti
Jarðskjálfti á Hokkaido-eyju
📅 26.04.2026 22:35:37 👁️ 1

Jarðskjálfti á Hokkaido-eyju

#jarðskjálfti#hokkaido#eyju
Israeli strikes kill 14 in Lebanon amid ongoing ceasefire
📅 26.04.2026 22:02:45 👁️ 3

Israeli strikes kill 14 in Lebanon amid ongoing ceasefire

#ceasefire#israeli#strikes#lebanon#ongoing
Furðar sig á þögn yfir „einu helsta á­hyggju­efni Ís­lands“ - Vísir
📅 26.04.2026 21:55:12 👁️ 1

Furðar sig á þögn yfir „einu helsta á­hyggju­efni Ís­lands“ - Vísir

#áhyggjuefni#íslands#furðar#helsta#vísir
Maður fannst látinn við Háafoss
📅 26.04.2026 21:40:00 👁️ 0

Maður fannst látinn við Háafoss

#háafoss#fannst#látinn#maður
Death toll in Colombia highway bus bomb attack rises to 20
📅 26.04.2026 21:33:00 👁️ 0

Death toll in Colombia highway bus bomb attack rises to 20

#colombia#highway#attack#death#rises
„Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“
📅 26.04.2026 21:23:28 👁️ 2

„Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“

#ríkisstyrkt#chernobyl#risastór#lygi
Krónu kastað fyrir aurinn í fjár­mögnun skóla - Vísir
📅 26.04.2026 21:18:37 👁️ 3

Krónu kastað fyrir aurinn í fjár­mögnun skóla - Vísir

#fjármögnun#kastað#aurinn#krónu#fyrir
Svartþrastamóðir sinnir ungviðinu í beinni
📅 26.04.2026 21:01:58 👁️ 1

Svartþrastamóðir sinnir ungviðinu í beinni

#svartþrastamóðir#ungviðinu#sinnir#beinni
Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni
📅 26.04.2026 21:01:58 👁️ 1

Svartþrastarmóðir sinnir ungviðinu í beinni

#svartþrastarmóðir#ungviðinu#sinnir#beinni
Mali Defence Minister Sadio Camara killed as country hit by rebel attacks
📅 26.04.2026 20:56:26 👁️ 1

Mali Defence Minister Sadio Camara killed as country hit by rebel attacks

#minister#defence#country#attacks#camara
Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni
📅 26.04.2026 20:39:47 👁️ 1

Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni

#slökkviliðsstöðvar#laugarvatni#ánægja#nýrrar#mikil
Fannst látinn við Háafoss - DV
📅 26.04.2026 20:30:48 👁️ 2

Fannst látinn við Háafoss - DV

#háafoss#fannst#látinn
Maðurinn sem fannst við Háafoss er látinn
📅 26.04.2026 20:20:35 👁️ 2

Maðurinn sem fannst við Háafoss er látinn

#maðurinn#háafoss#fannst#látinn
Maðurinn fannst látinn í gilinu - Vísir
📅 26.04.2026 20:16:28 👁️ 1

Maðurinn fannst látinn í gilinu - Vísir

#maðurinn#fannst#látinn#gilinu#vísir
Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss - DV
📅 26.04.2026 20:02:49 👁️ 1

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss - DV

#björgunarsveitir#kallaðar#forgangi#háafoss#hæsta
Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra
📅 26.04.2026 19:57:49 👁️ 2

Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra

#nikótínpúðum#plokkurum#blöskraði#pokana#þeirra
Sást til ein­stak­lings ofan í gili við Háafoss - Vísir
📅 26.04.2026 19:28:19 👁️ 0

Sást til ein­stak­lings ofan í gili við Háafoss - Vísir

#einstaklings#háafoss#vísir#sást#ofan