Vinsælt skynjunarleikfang veldur foreldrum áhyggjum og sumar tegundir hafa verið innkallaðar. Leikskólakennari segist hafa fengið nóg af slíku dóti þegar það sprakk í höndum barns hennar.
Leikfangið er eitt það vinsælasta á landinu og gengur undir ýmsum nöfnum, til dæmis Squeezy eða Squishy, og á íslensku hefur verið talað um skynjunarleikfang eða kreistileikfang.
Fæst í ýmsum litum og formum
Það fæst víða, er til í ýmsum litum og formum en er að öllu jöfnu úr mjúku plasti. Inni í því er fylling, oft sandur, hlaup eða vökvi og það að handfjatla leikfangið á að róa og auka einbeitingu.
Nokkrar tegundir af þessum leikföngum hafa verið innkallaðar erlendis og heilbrigðisyfirvöld víða um heim vara við hættulegu innihaldi á borð við blý, asbest, ólögleg þalöt og bensen.
Þessi efni geta til dæmis valdið brunatilfinningu, ofnæmisviðbrögðum og útbrotum.
Þá hefur verið sérstaklega varað við því að hita leikfangið í örbylgjuofni til að mýkja það.
Foreldrar tala um einkennilega lykt og vökva
Talsverðar umræður hafa verið um þessi leikföng á samfélagsmiðlum. Í hópum eins og Mæðratips á Facebook hafa margir foreldrar lýst reynslu sinni af leikfanginu.
Til dæmis skrifaði móðir þar nýverið að einhvers konar vökvi eða hlaup hefði lekið úr nýkeyptu leikfangi. Önnur segist hafa skilið slíkt leikfang eftir í bíl í sólskini, það hefði sprungið og vökvi lekið úr því.
Þá tala margir foreldrar um einkennilega lykt af leikfanginu og vökvanum sem er inni í því.
Dettur ekki í hug að kaupa þetta aftur
Erla Þórdís Traustadóttir leikskólakennari var í flugvél með börnum sínum þegar skynjunarleikfang þeirra sprakk. „Stelpan mín rétti mér þetta... mamma, þetta er sprungið. Og það lak eitthvað hvítt gums út úr þessu,“ segir Erla.
Börn Erlu höfðu leikið sér með skynjunarleikföng fram að þessu. „Allavega fékk ég algerlega nóg af þessu dóti, ég er svolítið smeyk við þetta. Mér dettur ekki í hug að kaupa þetta aftur.“
Heldurðu að foreldrar séu almennt meðvitaðir um hvað er í leikföngum barnanna? „Engan veginn. Það þurfa allir að passa sig, held ég. Vera varir um sig og kíkja á merkingar.“
Engin staðfest tilvik um eitranir hér á landi
Víða erlendis hafa verið staðfest tilvik um eitranir vegna þessara leikfanga, ekki er vitað um slíkt hér á landi en samkvæmt upplýsingum frá Eitrunarmiðstöð Landspítala berast þangað reglulega erindi frá foreldrum sem hafa áhyggjur af sprungnum leikföngum og efninu sem lekur úr þeim.
Neytendastofa hefur sömuleiðis fengið ábendingar vegna leikfanganna. Vöruvaktin, undirstofnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, sem veitir upplýsingar um hættulegar vörur, hefur innkallað eina tegund hér á landi, varað við annarri og fengið ábendingar um fleiri sem eru til skoðunar.