Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson verður á ferðinni þetta sumarið eins og flest önnur. Hann hefur verið að spila nokkra tónleika að undanförnu með hljómsveit sinni Hjálmum auk þess að leggja af stað í þessari viku í sumarferðalag GÓSSins. Hann verður einmitt með báðum þessum hljómsveitum á Bergmáli, stórtónleikum Kaleó á Þingvöllum í næstu viku.
Sigurður var gestur vikunnar í hlaðvarpinu Popparasögum þar sem hann ræddi einmitt um Hjálma og GÓSS auk þess að tala um Memfismafíuna, jólalögin, Baggalút, leikhúsið, Megas og Senuþjófana, samstarfið með Sigríði Thorlacius og Braga Valdimar og margt fleira.

Verðum að finna út úr því
Fyrsta plata Hjálma, Hljóðlega af stað, kom út árið 2004 og naut gríðarlegra vinsælda. Nokkru fyrr höfðu þeir félagar, Sigurður og Guðmundur Kristinn Jónsson, verið að vinna í Geimsteini, hljóðveri Rúnars Júlíussonar í Keflavík. Rúnar var þá að taka upp plötu og vildi hafa nokkur reggae-lög á henni.
„Þarna erum við bara: heyrðu, reggae, við þurfum einhvern veginn að finna út úr því. Og svo gerum við þetta náttúrlega af mikilli vankunnáttu og einhvern veginn út í bláinn,” rifjar Sigurður upp í hlaðvarpinu. Niðurstaðan varð meðal annars lagið Gott er að gefa sem náði miklum vinsældum á Íslandi.
Úr þessu þróaðist svo hljómsveitin Hjálmar. Eins og hjá mörgum öðrum hljómsveitum sem slá í gegn á Íslandi þá þróuðust hlutirnir hratt. Þeir urðu fljótt ein vinsælasta hljómsveit landsins og hafa átt mörg mjög vinsæl lög, eins og Leiðin okkar allra, Manstu og Ég vil fá mér kærustu. Sagan á bak við síðasta lagið tengist Félagsheimilinu á Flúðum, þar sem önnur plata Hjálma var tekin upp, og þingmanninum fyrrverandi Ísólfi Gylfa Pálmasyni sem var þá sveitarstjóri í hreppnum.
Hjálmar voru að spila lagið í hljóðprufu í Félagsheimilinu á Flúðum þegar Ísólfur Pálmi kemur óvænt inn. „Og í því labbar hann inn á gólf og segir, heyrðu strákar, ég held að mamma eigi til íslenskan texta við þetta,” rifjar Sigurður upp. Þeir fengu textann og úr varð „endingarbesti hittari” Hjálma hingað til, eins og Sigurður orðar það.
Ítalskt tökulag eins og mörg önnur
Hann talar einnig um það þegar söngvarinn Sigurður Guðmundsson varð til. Það var þegar platan Oft spurði ég mömmu með honum sjálfum og Memfismafíunni var tekin upp en platan var einmitt sú fyrsta sem kom út frá þeim félagsskap. Sigurður hafði þá í nokkur ár verið annar söngvarinn í Hjálmum án þess þó að finna sig fullkomlega í hlutverki söngvarans. „Ég var ekki alveg nógu sáttur við stjórnina á röddinni minni og þarna leið mér fyrst eins og ég gæti púllað þetta,“ segir hann.
Stuttu seinna kom svo út jólaplata frá Sigurði sem heitir Nú stendur mikið til og inniheldur lög eins og Nú mega jólin koma fyrir mér og Það snjóar sem hvort tveggja er núna meðal vinsælustu jólalaga þjóðarinnar.
Sigurður rifjar upp í hlaðvarpinu þegar hann var að reyna að semja textann við lagið Það snjóar en upprunalega lagið er ítalskt tökulag eins og mörg önnur íslensk jólalög. „Ég var búinn að vera að berjast við að búa til einhvern texta við þetta sjálfur og var kominn með ´það snjóar´ og var kominn með einhverja beinagrind um hvað þetta væri. Svo líður og bíður og það líða einhverjar vikur og þetta gengur ekkert með þann texta,” segir Sigurður og bætir við.
„Svo hitti ég Braga Valdimar og rétti honum blaðið sem ég var með og sagði: „Hey, Bragi, þetta bara vill ekki detta. Geturðu kíkt á þetta?“ Og svona í minningunni þá tekur hann upp blaðið og labbar svona inn ganginn og til baka. Bara svona eins og ekkert væri. Og þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi,“ segir Sigurður og hlær.
Kaflaskipt ár tónlistarmannsins
Hljómsveitin GÓSS, sem Sigurður skipar ásamt Sigríði Thorlacius og Guðmundi Óskari, bróður sínum, verður á ferðalagi í sumar eins og hún hefur gert nær óslitið í rúman áratug. Þessi ferðalög þeirra um landið hafa notið mikilla vinsælda og hafa þau komið fram á mörgum áhugaverðum stöðum eins og kirkjum, sviðum utandyra og þá hafa tónleikar þeirra í Básum í Þórsmörk vakið verðskuldaða athygli. „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og einhvern veginn myndast þar alveg mögnuð stemning alltaf,” segir Sigurður um tónleika Góssins í Básum.
Hann talar um að árið sé svolítið kaflaskipt, það er að annars vegar er sumarvertíð þar sem Hjálmar og GÓSS eru fyrirferðamikil og hins vegar jólavertíð þar sem jólatónleikarnir eru áberandi bæði með Baggalúti og Sigurði og Sigríði. „Þannig að þetta eru tvær góðar vertíðir á ári, sumar- og jólavertíðin. Sem er bara mjög fínt, sko,“ segir Sigurður.
Núna er sumarvertíðin farin af stað og hefst tónleikaferðalag Góssins um helgina með tónleikum í Bæjarkirkju í Borgarfirði laugardaginn 13. júní, í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 14. júní, í Ægi 220 þann 17. júní og svo á Bergmáli á Þingvöllum laugardaginn 20. júní.