Vill fleiri hvata til barneigna: „Þjóðfélaginu lífsnauðsynlegt“
Hann vill meðal annars að fleiri aðilar en hið opinbera komi að umönnun barna sem eru undir þriggja ára aldri og að kerfið verði sveigjanlegra en það er í dag.
Að hans mati eru slík skref nauðsynleg til að skapa öryggi hjá ungu fólki sem stendur frammi fyrir ákvörðunum eins og að eignast börn.
Ekki aðeins spurning um peninga
Þrátt fyrir að rætt sé um mögulega hvata eins og skattaafslætti eða niðurgreiðslur segir Brynjar að málið snúist ekki eingöngu um fjárhagslega þætti.
„Ég held að þetta snúist líka um hugarfar,“ og segir að samfélagsleg viðhorf gagnvart því að mynda fjölskyldu hafi breyst.
Hann bendir á að þegar sé umtalsverð opinber þjónusta í boði fyrir barnafólk, til dæmis í gegnum leikskóla og skólakerfið, en að það eitt og sér tryggi ekki auknar barneignir.
Segir börnin vera framtíðina
Brynjar leggur áherslu á að barneignir snúist ekki aðeins um einstaklinginn heldur samfélagið í heild. „Börnin eru auðvitað framtíðin,“ segir hann og bætir við að mikilvægt sé að horfa til lengri tíma þegar stefnur eru mótaðar.
Hann segir jafnframt að stjórnmálamenn þurfi að velta fyrir sér hvaða gildi þeir vilji leggja áherslu á og hvort ekki sé mikilvægt að varðveita menningu og samfélagsgerð.
Vill róttækar breytingar á öðrum sviðum
Í þættinum ræðir Brynjar einnig um samgöngumál og segir nauðsynlegt að endurskoða samninga um Borgarlínu og samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins í heild sinni.
Hann telur að víða þurfi að vinda ofan af því sem hann kallar rugli síðustu áratuga og nefnir meðal annars að ráðast eigi í framkvæmdir við mislæg gatnamót á horni Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.
Að hans mati er ekki hægt að leysa einstök vandamál, eins og lækkun fæðingartíðni, án þess að horfa á stóru myndina í skipulagi samfélagsins.
Hægt er að horfa á brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt horfa á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.