Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra segir stjórnarandstöðuna í uppgjöf gagnvart Evrópusambandinu. Þingmaður Miðflokksins segir ríkisstjórnina kasta steinum úr glerhúsi.
Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu hélt áfram á Alþingi í morgun.
Við upphaf þingfundar voru óundirbúnar fyrirspurnir og beindust nokkrar þeirra að Evrópusambandinu. Í óundirbúnum fyrirspurnum var meðal annars tekist á um orkumál, olíumarkað, verðstarfsemi flugvalla, sundabraut, hagvaxtarhorfur og ferðaþjónustu.
Í svari við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, um samningsmarkmið Íslands í orkumálum í aðildarviðræðum um ESB, varaði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra við nálgun stjórnarandstöðunnar, sem hann sagði fara í uppgjöf fyrir fram gagnvart Evrópusambandinu.
„Erum við ekki stolt þjóð? Viljum við ekki bera höfuðið hátt í mögulegum samningaviðræðum? Hvers vegna að gefa sér það fyrir fram að Ísland komist hvorki lönd né strönd í mögulegum samningaviðræðum við Evrópusambandið, sérstaklega þegar það liggur fyrir, og hæstv. forsætisráðherra hefur verið algerlega skýr með það, að við munum ekki einu sinni leggja fram samning fyrir þjóðina ef okkur líst ekki á hann,“ sagði Jóhann Páll.
„Við erum ekki að fara í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu með vonlausan samning við Evrópusambandið sem stjórnarflokkarnir standa ekki með.“
Sakaði ríkisstjórnina um blekkingar
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, fór hörðum orðum um þingsályktunartillögu ríkisstjórnar í ræðu sinni. Hún sagði vinnubrögð meirihlutans ótraustvekjandi og sakaði ríkisstjórnina um blekkingar.
„Hér hefur stjórnarandstaðan verið sökuð um hræðsluáróður vegna þess að hún vogar sér að spyrja spurninga og gera athugasemdir. En ég spyr: Hver beitir hræðsluáróðri? Það er ekki stjórnarandstaðan. Það er meirihlutinn og þingsályktunartillagan sem hér er lögð fram.“
Ingibjörg sagði þingsályktunartillöguna uppfulla af hræðsluáróðri. Hún hélt því fram að ríkisstjórnin héldi upplýsingum frá almenningi sem væri grafalvarlegt mál.
„Forsvarsmenn tveggja stjórnmálaflokka, Viðreisnar og Samfylkingar hafa ítrekað sakað stjórnarandstöðuna um að vera með þennan hræðsluáróður. Þetta kalla ég að kasta steinum úr glerhúsi.“