Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir IKEA hafa rétta hugarfarið en sænski húsgagnaframleiðandinn hefur tilkynnt um verðlækkun á rúmlega þúsund vörum. Vilhjálmur telur að þarna sé IKEA að sýna að hægt sé að snúa vörn í sókn og spyr hver ætli að fylgja þessu fordæmi á eftir.Þetta kemur fram á Facebook þar sem Vilhjálmur skrifar:„IKEA Á HRÓS SKILIÐ – SVONA GERUM VIÐ ÞETTA!“
Vilhjálmur lukkulegur með tíðindin- „Þetta er nákvæmlega það hugarfar sem við þurfum núna“