Viður­kennir að opin­ber gjöld hefðu getað hækkað minna - Vísir

Viður­kennir að opin­ber gjöld hefðu getað hækkað minna - Vísir

Viður­kennir að opin­ber gjöld hefðu getað hækkað minna - Vísir

Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í vikunni og eru þeir nú átta prósent. Verðbólga mældist 5,3 prósent í júlí og bankinn gerir ráð fyrir að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum.

„Þetta eru vonbrigði að við séum í þessari stöðu,“ segir Kristrún í samtali við fréttastofu.

Hún segir áföll þessa árs hafa haft meiri áhrif á verðbólguvæntingar en ríkisstjórnin vonaðist til. Verðbólga hafi verið undir fjórum prósentum allt síðasta ár og bæði ríkisstjórnin og Seðlabankinn mögulega talið að betri tök hefðu náðst á henni.

Segir ríkisstjórnina glíma við eldri ákvarðanir

Kristrún var spurð hvort rétt væri að eigna ríkisstjórninni góðan árangur á fyrsta starfsári hennar, enda geti áhrif efnahagsstjórnar og peningastefnu tekið tólf til átján mánuði að koma fram.

Hún segir áhrif ákvarðana í efnahagsmálum koma hægt fram og ríkisstjórnina enn glíma við afleiðingar fyrri ákvarðana.

„Við til dæmis fáum kjarasamningshækkanir núna í janúar, sem eru kjarasamningar sem við gerðum ekki. Kjarasamningur við sérfræðilækna og læknastéttina var gerður tveimur dögum fyrir síðustu kosningar.“

Ríkisstjórnin geti þó haft áhrif á væntingar, meðal annars með því að stefna á hallalaus fjárlög. Kristrún viðurkennir að verðbólguvæntingar hafi þróast verr en vonast var til.

Gjaldahækkanir höfðu áhrif í janúar

Seðlabankinn segir aukna verðbólgu fyrst og fremst skýrast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.

Kristrún segir ríkisstjórnina ekki hafa hækkað opinber gjöld umfram það sem gengið hafi og gerst á liðnum árum. Hún viðurkennir þó að hækkanirnar hefðu getað verið minni.

„Hefðu þessar hækkanir getað verið minni? Eflaust eru þær að hafa áhrif á verðbólguna, við sjáum það ekki í þeim vísitölum sem við erum að miða við.“

Fastskattavísitala Hagstofunnar bendir til þess að skatt- og gjaldabreytingar hafi haft um 0,33 prósentustiga hækkunaráhrif í janúar. Vísitala neysluverðs hækkaði þá um 0,38 prósent en fastskattavísitalan um 0,05 prósent.

Samanlögð áhrif þeirra breytinga sem Hagstofan tekur með í matið voru hins vegar nær engin frá desember til júlí. Þar vegur þungt tímabundin lækkun virðisaukaskatts á bensín og dísil í maí. Hagstofan mat lækkunaráhrif hennar 0,32 prósentustig.

Fastskattavísitalan nær aðeins til þeirra skatta og gjalda sem Hagstofan tekur sérstaklega með í matið en ekki allra opinberra gjalda eða gjaldskrárhækkana.

Vill draga úr sjálfvirkni verðtryggingar

Seðlabankastjóri hefur varað við sjálfvirkum hækkunum opinberra gjalda í takt við verðlag. Kristrún segir sjálfvirknina ekki bundna við opinber gjöld heldur gegnsýra íslenska hagkerfið.

„Það er mikil sjálfvirkni í kerfinu almennt, vegna þess að verðtryggingin hefur gegnsýrt allt íslenskt hagkerfi.“

Hún segir fjármálaráðherra ætla að leggja fram frumvarp í haust sem eigi að draga smám saman úr vægi verðtryggingar. Það geti jafnframt haft áhrif á viðhorf og væntingar fólks um verðbólgu.

Óvíst með áframhald eldsneytisaðgerðarinnar

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti rennur að óbreyttu út í september. Kristrún vildi ekki segja hvort aðgerðin yrði framlengd.

„Við höfum rætt þessi mál aðeins, við þurfum bara að skoða þetta núna í heildarsamhenginu.“

Hún segir þróun olíuverðs og áhrif þess á aðra liði, þar á meðal flugfargjöld, áhyggjuefni. Ríkisstjórnin eigi í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins um hugsanleg viðbrögð.

„Við eigum núna í uppbyggilegu samtali við aðila vinnumarkaðarins og erum að leita leiða til að koma til móts við þá án þess að fara í mikil ófjármögnuð fjárútlát og ég bind miklar vonir við það.“

Umfangsmiklar aðgerðir á útgjaldahliðinni

Kristrún segir stærsta framlag ríkisstjórnarinnar til að halda aftur af þenslu vera að skila hallalausum fjárlögum í haust.

„Það gengur ekki í vöxtum sem eru 7 til 8% og 5% verðbólgu að vera með halla á ríkissjóði.“

Aðhaldsaðgerðirnar verði fyrst og fremst á útgjaldahliðinni.

„Við erum að fara í aðgerðir sem eru frekar umfangsmiklar á útgjaldahliðinni, það sést um leið og við leggjum fram þessi fjárlög. Við erum ekki að fara í umfangsmiklar gjaldahækkanir.“

Opinberum störfum fjölgar á meðan þeim fækkar á einkamarkaði

Kristrún var einnig spurð um gögn sem Seðlabankinn kynnti samhliða vaxtaákvörðuninni. Í maí hafði launafólki í opinberri þjónustu fjölgað um 4,9 prósent milli ára en á sama tíma fækkaði því um 1,9 prósent á almennum vinnumarkaði. Þá benti seðlabankastjóri á að laun opinberra starfsmanna hefðu leitt launaþróun að undanförnu.

Launafólki í opinberri þjónustu fjölgaði um 4,9 prósent milli ára í maí en fækkaði um 1,9 prósent á almennum vinnumarkaði.Graf/Seðlabanki Íslands.

Spurð hvort stjórnvöld þyrftu að bregðast sérstaklega við þróuninni vísaði Kristrún aftur til hallalausra fjárlaga.

„Við erum að senda þau skilaboð með því að skila hallalausum fjárlögum í fyrsta skipti í að verða áratug. Það eru risastór skilaboð. Það er ekki auðvelt að ráðstafa aðgerðum sem skila þessu.“

Hún segir launahækkanir þó ekki bundnar við hið opinbera og bendir á launaskrið á almenna vinnumarkaðinum.

„Það hafa orðið miklar almennar launahækkanir á Íslandi, hvort sem um er að ræða opinbera markaðinn eða almenna markaðinn. Það hefur verið launaskrið umfram kjarasamninga. Þetta voru skynsamlegir kjarasamningar en einkaaðilar hafa líka hækkað laun umfram það, þannig að við verðum öll að halda í okkur og taka skynsamleg skref núna á næstu mánuðum.“

Tilbúin að skoða gjöldin

Kristrún segir ríkisstjórnina tilbúna að skoða einstök opinber gjöld í tengslum við viðræður við vinnumarkaðinn.

„Við erum í samtali við vinnumarkaðinn um meðal annars gjöld og erum tilbúin að skoða ákveðna þætti ef það er innan ákveðins skynsemismarka.“

Hún segir þó þurfa að fjármagna opinbera þjónustu. Miklar gjaldalækkanir án mótvægisaðgerða gætu grafið undan þjónustunni en niðurskurður gæti jafnframt bitnað á velferðarkerfinu.

Stóra prófið verði fjárlagafrumvarpið í haust. Kristrún segist enn hafa trú á áætlun ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir vaxtahækkunina og versnandi verðbólguhorfur.

„Við fengum þetta högg núna í upphafi árs. Við munum bara fara í gegnum það saman og við höldum plani varðandi hallalaus fjárlög.“

#getað #gjöld #hefðu #opinber #viðurkennir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924250d/vidurkennir-ad-opinber-gjold-hefdu-getad-haekkad-minna

📰 Aðrar fréttir

ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 2
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 2
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3

Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 3
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 3
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 3
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 3
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 3
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 3
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says

Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 3
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 4
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...