Athugasemdir hafa verið gerðar við ýmis atriði er lúta að tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina að Ægisíðu 104 í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar stendur leikskólinn Ægisborg en tillagan gengur út á leikskólabyggingin yrði rifin og í staðinn byggður nýr og mun stærri leikskóli með átta deildum í stað fjögurra á þeim gamla. Segja má því að til standi að tvöfalda leikskólann. Leyfilegt byggingamagn á lóðinni á síðan að auka enn meira. Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn athugasemdum við tillöguna.
Víðtækar athugasemdir gerðar við fyrirhugaða tvöföldun á leikskóla í Vesturbænum - „Hér þarf Reykjavíkurborg að útskýra og rökstyðja“