Bryndís Rut Logadóttir og María Ellen Steingrímsdóttir lögðu tillöguna fram á fundi menntaráðs í gær. Þær vildu að ráðið skoraði á ráðherra að fresta breytingunum þannig að nýi kvarðinn yrði ekki notaður við lokamat nemenda í tíunda bekk vorið 2027.
Samkvæmt drögum ráðuneytisins eiga nemendur þá að fá lokaeinkunnir frá fjórum til tíu í stað bókstafa. Einkunnin sjö merkir að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem ætlast er til við lok grunnskóla.
Óttast misræmi í einkunnagjöf
Í tillögu Viðreisnar segir að endanleg útfærsla kvarðans liggi ekki fyrir. Óvissa um framkvæmdina geti leitt til misræmis í einkunnagjöf og haft alvarlegar afleiðingar fyrir nemendur þegar þeir sæki um framhaldsskóla.
Fulltrúarnir taka fram í bókun sinni að þeir styðji markmið breytinganna um aukið samræmi og jafnræði í námsmati. Ágreiningurinn snúist um tímasetninguna.
„Það skýtur hins vegar skökku við að meirihlutinn viðurkenni sjálfur verulega annmarka á undirbúningi og skort á stuðningi við skólana, en telji á sama tíma óábyrgt að fresta innleiðingunni.“
Þær segja að þótt margir skólar séu langt komnir í undirbúningi tryggi það ekki að allir geti beitt nýjum kvarða með sambærilegum hætti. Hætta sé á að nemendur sitji ekki við sama borð við lok grunnskólagöngu.
Telja frestun auka óvissu
Meirihluti menntaráðs segir samtöl við nemendur, foreldra, kennara og skólastjórnendur staðfesta að undirbúningur og kynning ríkisstjórnarinnar hafi verið ófullnægjandi. Skólarnir hafi ekki fengið nægan stuðning við innleiðinguna og við það geri meirihlutinn alvarlegar athugasemdir.
Hann telur þó tölukvarða skref í rétta átt og skárri kost en bókstafakvarðann. Margir skólar séu langt komnir í undirbúningi og frestun myndi auka óvissu hjá nemendum sem útskrifist í vor.
„Frestun innleiðingar viðheldur gagnrýndu fyrirkomulagi og væri því óábyrg,“ segir í bókun meirihlutans.
Meirihlutinn kallar eftir tafarlausum auknum stuðningi ráðuneytisins og leggur fyrir menntasvið að kynna breytingarnar fyrir foreldrum og nemendum.
Snorri gagnrýnir Viðreisn
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi Viðreisn vegna málsins á Alþingi í dag. Hann benti á að fulltrúar flokksins í Kópavogi vildu fresta breytingum sem kæmu frá ríkisstjórn sem Viðreisn ætti sjálf aðild að.
Snorri sagðist styðja að tölur kæmu í stað bókstafa en gagnrýndi útfærsluna og að hæfniviðmiðunum sem námsmatið byggðist á væri ekki breytt samhliða.
„Væri ekki nær fyrir Viðreisn að einfaldlega axla meiri ábyrgð í ríkisstjórnarsamstarfinu og koma í veg fyrir ruglið til þess að byrja með?“ spurði Snorri.