Grínsketsar spila stórt hlutverk í lífi Íslendinga að sögn Kjartans Loga Sigurjónssonar en hann var gestur Dagmála í dag.
Kjartan hefur verið að gera góða hluti með grínsketsum sem hann birtir á samfélagsmiðlum og hafa fengið góðar móttökur.
Að mati Kjartans væri Ísland ábyggilega „mjög þunglynt land“ ef ekki væri fyrir grínið og húmorinn.
Sketsagerð á samfélagsmiðlum
Hann segir sketsagerð vera að færast í auknum mæli yfir á samfélagsmiðla.
„Já, ég held það nú en mig langar ekki að þróunin verði þannig. Mig langar að það komi fleiri sketsaþættir í sjónvarpið,“ segir hann.
Sjónvarpsþættir bjóði upp á tækifæri til lengri sketsa sem fólk á samfélagsmiðlum hefur kannski ekki þolinmæði fyrir.