„Við þurfum ekki á Kanada að halda“ - Vísir

„Við þurfum ekki á Kanada að halda“ - Vísir

„Við þurfum ekki á Kanada að halda“ - Vísir

Kanadamenn ætla að svara fyrir sig með eigin tollum á vörur frá Bandaríkjunum.

Þegar viðræðunum var slitið á föstudaginn sagði Carney að Bandaríkjamenn hefðu beðið um of mikið og boðið of lítið. Seinna um helgina sagði forsætisráðherrann að viðræðurnar hefðu strandað á nokkrum atriðum.

Sjá einnig: „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“

Nefndi hann meðal annars tolla á bíla og varahluti í bíla, það að Bandaríkjamenn hefðu á lokametrunum reynt að bæta við ákvæði sem snerist um að takmarka getu Kanadamanna til að gera fríverslunarsamninga við aðra og hefðu einnig bætt við ákvæði um frönsku og franska menningu í Kanada.

Carney sagði síðasta ákvæðið vera alfarið óásættanlegt og snúast um fullveldi Kanada.

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, segir að Bandaríkjamenn hafi reynt að bæta óvænt ákvæðum í viðskiptasamning ríkjanna. Þau hafi farið gegn fullveldi Kanada.AP/Patrick Doyle, The Canadian Press

Jamieson Greer, sem kom að viðræðunum fyrir hönd ríkisstjórnar Trumps, segir aftur á móti að það hafi verið Kanadamenn sem hafi breytt afstöðu sinni í lokin á viðræðum. Þeir hafi krafist meira en Bandaríkjamenn hafi verið tilbúnir til að gefa.

Að öðru leyti eru upplýsingar um hvað samningsdrögin snerust um nokkuð takmarkaðar.

Heilt yfir er það þó mat fjölmiðla og annarra vestanhafs að Kanadamenn hafi tekið vel í ákvörðun Carneys. Óhætt er að segja að þar á bæ séu menn ósáttir við framgöngu Donalds Trump og Bandaríkjamanna í garð Kanada á undanförnum mánuðum og jafnvel árum.

Eins og frægt er hefur Trump ítrekað talað um að gera Kanada að 51. ríki Bandaríkjanna. Hann hefur einnig sagst ætla að beita Kanada efnahagsaðgerðum til að þvinga Kanadamenn til að ganga inn í Bandaríkin.

Í dag hótaði Trump enn meiri tollum á vörur frá Kanada. Í færslu sem hann skrifaði á Truth Social, sinn eigin samfélagsmiðil, segir Trump að Kanadamenn hafi haft Bandaríkin að féþúfu um árabil. Ekki verði lengur komið fram við Kanada eins og ríki Bandaríkjanna.

Trump vísar til viðskiptahalla ríkjanna, þar sem Bandaríkin kaupi mun meira af Kanada en öfugt, og segir að það verði ekki lengur liðið.

Um næstu áramót verði tollar auknir enn frekar og vísar sérstaklega til bíla og stáls.

„Framleiðið í Bandaríkjunujm og það verða NÚLL TOLLAR,“ skrifaði Trump.

„Þegar kemur að viðskiptum, og á öðrum sviðum, eru þeir á meðal verstu þjóða heimsins að eiga við. Þeir eru tilætlunarsamir, en þrátt fyrir það, VIÐ ÞURFUM EKKI Á KANADA AÐ HALDA, ÞEIR ÞARNFAST OKKAR!“
Færsla Trumps á Truth Social.

Vill opinbera samningsdrögin

Pierre Poilievre, leiðtogi Íhaldsflokksins í Kanada, hefur beðið Carney um að kalla saman þing svo fræða megi þingmenn um viðræðurnar. Carney hefur sagst ætla að ræða við leiðtoga stjórnarandstöðunnar í vikunni.

Poilievre hefur einnig farið fram á að Carney birti þau samningsdrög sem lágu fyrir og að þau verði opinberuð. Samkvæmt frétt Ríkisútvarps Kanada vill Poilievre þannig að kanadíska þjóðin fái að dæma ákvörðun ríkisstjórnarinnar á almennilegum forsendum og sjá hvaða valkostir eru í boði fyrir Kanada.

Pierre Poilievre, leiðtogi Íhaldsflokksins í Kanada, vill að þjóðin fái að sjá samninginn sem ríkisstjórnin hafnaði.EPA/KAMARA MOROZUK

Í bréfi sem Poilievre sendi Carney í gær, sunnudag, biður hann einnig um að útskýra hvernig viðskipta- og efnahagsstefna ríkisstjórnar hans muni kosta Kanadamenn og hvernig ríkisstjórnin ætli að standa vörð um störf í þeim iðnaði Kanada sem tollar Trumps munu koma hvað mest niður á.

Stjórnarandstöðuleiðtoginn segir að hagsmunir þjóðarinnar verði að vera í fyrirrúmi. Það að samkomulag hafi ekki náðst við Bandaríkin sé líklegt til að koma verulega niður á hagkerfi Kanada og veskjum Kanadamanna.

Aðrir leiðtogar í stjórnarandstöðunni hafa slegið á svipaða strengi, með því að segjast styðja þá ákvörðun að gera ekki slæmt samkomulag við Bandaríkin en í senn benda á að Kanadamenn viti í raun ekki almennilega hverju var hafnað. Einhverjir hafa sagt að opinbera eigi samningsdrögin en aðrir segja að byrja eigi á að fræða leiðtoga þingflokka um stöðuna.

Varaði „miðlungsríki“ við vopnavæðingu viðskipta

Í grein AP fréttaveitunnar segir að það hvernig Kanadamenn hafi brugðist við og muni koma út úr þessum viðskiptadeilum muni hafa áhrif á leiðtoga annarra ríkja. Þeir muni sjá hvernig best sé að sigla á þeim ólgusjó sem alþjóðasamskipti, og þá sérstaklega samskipti við Bandaríkin, eru í dag.

Kanadamenn hafa á undanförnum áratugum samtvinnað hagkerfi sitt töluvert við hagkerfi Bandaríkjanna og einnig við hagkerfi Mexíkó. Þetta á sérstaklega við bílaframleiðslu þar sem íhlutir í sömu bílana eru framleiddir í öllum löndunum þremur.

Stór hluti alls útflutnings Kanada fer til Bandaríkjanna og Kanadamenn flytja einnig töluvert af vörum inn frá Bandaríkjunum, þó dregið hafi úr því síðan Trump byrjaði að tala um að Kanada ætti að verða 51. ríkið og beitti Kanada umfangsmiklum tollum.

Það hvað Kanadamenn hafa farið í hart þegar kemur að áfengi frá Bandaríkjunum hefur haft sérstök áhrif á Trump. Hann hefur krafist þess að bandarískt áfengi rati aftur í hillur verslana í Kanada.

Sjá einnig: Vilja ekkert með á­fengi ná­granna sinna hafa

Kanadamenn eru að fjarlægja sig verulega frá nágrönnum sínum í Bandaríkjunum. Þeir kaupa mun minna af vörum þaðan, ferðast lítið sem ekkert til Bandaríkjanna og neyta mun minna af bandarískum menningarafurðum.

Sjá einnig: Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada

Trump hefur beitt þessu nána viðskiptasambandi og því hvað Kanada er að miklu leyti háð Bandaríkjunum gegn Kanadamönnum.

Fyrr á árinu vakti Carney töluverða athygli þegar hann hélt ræðu á efnahagsráðstefnu í Davos í Sviss. Þar varaði hann sérstaklega við því að stærri ríki gætu beitt efnahagslegum aðgerðum eins og tollum til að kúga smærri ríki. Stærri ríki væru að vopnavæða milliríkjaviðskipti.

Um leið talaði hann til „miðlungsríkja“ á borð við Kanada, ríkja sem ekki eru eiginleg stórveldi en búa þó yfir ákveðinni getu og benti á að slík ríki væru ekki valdalaus. „Þau hafa getu til að byggja upp nýtt heimsskipulag sem byggir á gildum okkar, líkt og virðingu fyrir mannréttindum, sjálfbærri þróun, samstöðu, fullveldi og virðingu fyrir landamærum ríkja.“

Vald þeirra valdaminni þurfi að byrja á hreinskilni. „Á hverjum degi erum við minnt á það að við lifum á átakatímum á milli stórvelda. Að veröld sem byggir á reglum er að hverfa. Að þeir sterku geri það sem þeir geta, og hinir veiku þurfi að þola fyrir það.“

Með því að ganga frá samningaborðinu er Carney að gera það sem aðrir bandamenn Bandaríkjanna hafa hingað til ekki viljað gera. Það er að taka á sig efnahagslegt tjón í stað þess að lúffa undan tollaþrýstingi Trumps.

Sagði að Reagan myndi æla yfir Trump

Doug Ford, forsætisráðherra Ontario í Kanada, sagði í viðtali við AP í dag að Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, myndi æla yfir Trump vegna viðskiptastefnu forsetans.

Þá hótaði Ford því að stöðva sölu rafmagns frá Ontario til Bandaríkjanna og sömuleiðis sölu mikilvægra málma. Hann sagði að allt væri á borðinu.

Trump reiddist Ford verulega í fyrra og hækkaði tolla á vörur frá Kanada, eftir að sjónvarpsauglýsingar þar sem ummæli Reagans um það hvað tollar væru skaðlegir bandarísku hagkerfi og neytendum.

#ekki #halda #kanada #við #þurfum

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262925351d/-vid-thurfum-ekki-a-kanada-ad-halda-

📰 Aðrar fréttir

ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 0
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0

Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 2
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 2
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 2
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 2
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 2
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 2
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 2
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 2
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 3
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says

Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 3
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...