Atvinnuleysi á byggingamarkaði hefur aukist umtalsvert síðustu mánuði og samkvæmt tölum Samtaka iðnaðarins voru 1158 atvinnulausir í maí samanborið við 896 í maí í fyrra, aukning um 29%.
Á annað hundrað starfsmönnum hefur til að mynda verið sagt upp í pípulögnum undanfarið og dæmi eru um fyrirtæki þar sem starfsmönnum hefur fækkað um nokkra tugi.
„Hvað viðkemur nýbyggingamarkaðnum, þá er verulegur samdráttur þar og menn eru að segja upp mannskap“ segir Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara.
Fleiri bjóða í verk og fyrirtæki leita á landsbyggðina
Staðan er verst hjá þeim sem vinna verk við nýbygginar. Og áhrifin eru margvísleg.
„Þegar menn hafa verið að bjóða í verk þá hafa þetta verið tveir eða þrír að bjóða í sama verk. Nú er breyting á þessu og menn eru að sjá allt að fjórtán eða fimmtán fyrirtæki að bjóða í sama verkið.“
Dæmi eru um fyrirtæki sem bjóði undirverð í verkefni og að fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leiti annað.
„Menn sem eru með fyrirtæki hér á höfuðborgarsvæðinu eru farin að bjóða í verk úti á landi, víðsvegar um land. Þetta er breyting sem hefur ekki verið áður að menn eru farnir að leita út fyrir höfuðborgarsvæðið til að halda einhverri lágmarksveltu til að missa ekki mannskapinn.“
„Þetta er starfsemi sem er erfitt að endurræsa“
Þá sé erfiðara fyrir nema að komast á samning hjá meistara. Störfin sem standi eftir, t.d. í laxeldi eða gagnaverum séu of sérhæfð.
„Það hefur haldist vel í hendur að taka inn nema í þessar nýbyggingar, byrja þar og í þessum viðgerðum og breytingum. En að fara í þessi sérhæfðari verkefni, það er aðeins erfiðara í dag.“
Böðvar kallar eftir aðgerðum stjórnvalda sem þurfi að stíga inn með aðgerðir sem lækki stýrivexti og dragi úr verðbólgu. Óveðursský séu á lofti í haust og markaðurinn megi ekki kólna enn frekar.
„Þetta er starfsemi sem er erfitt að endurræsa, það er svo mikið undir þegar svona stórar byggingaframkvæmdir koðna niður og það er erfitt að ræsa það aftur.“