Kvikmyndin Ástin sem eftir er eftir Hlyn Pálmason hlaut flestar Eddur þegar verðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar voru afhent í Gullhömrum fyrr í kvöld.
Myndin hlaut alls sjö verðlaun, þar á meðal sem kvikmynd ársins og leik, en þess má geta að Hlynur var verðlaunaður fyrir handrit sitt, leikstjórn og kvikmyndatöku myndarinnar. Sverrir Guðnason, Saga Garðarsdóttir og Ída Mekkín, dóttir Hlyns, voru öll verðlaunuð fyrir leik sinn í myndinni.
Kvikmyndin Eldarnir eftir Uglu Hauksdóttur og sjónvarpsþáttaröðin Vigdís úr smiðju Vesturports hlutu næstflest verðlaun eða sex talsins hvor.
Eldarnir var m.a. verðlaunuð fyrir brellur, búninga, klippingu, leikmynd og tónlist. Vigdís var m.a. verðlaunuð fyrir leikstjórn, leik og búninga.
Þess má geta að Heimir Sverrisson hlaut tvenn verðlaun fyrir leikmyndir sínar, annars vegar í Eldunum og hins vegar í Vigdísi.
Sjónvarpsþáttaröðin Felix & Klara hlaut alls fimm verðlaun, m.a. fyrir handrit, klippingu, tónlist og leik.
Alls voru veitt sjö verðlaun í aðalflokkum, 14 fagverðlaun fyrir kvikmyndir og 14 fagverðlaun fyrir sjónvarps eða samtals 35 verðlaun, auk heiðursverðlauna sem í ár féllu í hlut Þorsteins Jónssonar leikstjóra.
Handhafar Eddunnar 2026
AÐALFLOKKAR
- Barna- og unglingamynd ársins Vonardagur
- Erlend kvikmynd ársins Affeksjonsverdi (Sentimental Value)
- Heimildamynd ársins Jörðin undir fótum okkar
- Heimildastuttmynd ársins Póstkort
- Kvikmynd ársins Ástin sem eftir er
- Stuttmynd ársins Merki
- Leikið sjónvarpsefni ársins Vigdís
FAGVERÐLAUN FYRIR KVIKMYNDIR
- Brellur ársins Szymon Kania – Eldarnir
- Búningar ársins Margrét Einarsdóttir – Eldarnir
- Gervi ársins Ásta Hafþórsdóttir og Sophie King – The Damned
- Handrit ársins Hlynur Pálmason – Ástin sem eftir er
- Hljóð ársins Gunnar Árnason – Fjallið
- Klipping ársins Kristján Loðmfjörð – Eldarnir
- Kvikmyndataka ársins Hlynur Pálmason – Ástin sem eftir er
- Leikari ársins í aðalhlutverki Sverrir Guðnason – Ástin sem eftir er
- Leikari ársins í aukahlutverki Jóhann G. Jóhannsson – Eldarnir
- Leikkona ársins í aðalhlutverki Saga Garðarsdóttir – Ástin sem eftir er
- Leikkona ársins í aukahlutverki Ída Mekkín Hlynsdóttir – Ástin sem eftir er
- Leikmynd ársins Heimir Sverrisson – Eldarnir
- Leikstjóri ársins Hlynur Pálmason – Ástin sem eftir er
- Tónlist ársins Herdís Stefánsdóttir – Eldarnir
FAGVERÐLAUN FYRIR SJÓNVARP
- Leikari ársins í aðalhlutverki Jón Gnarr – Felix & Klara
- Leikari ársins í aukahlutverki Steinþór Hróar Steinþórsson – Brjánn
- Leikkona ársins í aðalhlutverki Elín Hall – Vigdís
- Leikkona ársins í aukahlutverki Lára Jóhanna Jónsdóttir – Reykjavík Fusion
- Brellur ársins Haukur Karlsson – Reykjavík Fusion
- Búningar ársins Helga I. Stefánsdóttir – Vigdís
- Gervi ársins Ásta Hafþórsdóttir, Thomas Foldberg og Kristín Júlla Kristjánsdóttir – Felix & Klara
- Handrit ársins Ragnar Bragason og Jón Gnarr – Felix & Klara
- Hljóð ársins Gunnar Árnason – Vigdís
- Klipping ársins Valdís Óskarsdóttir – Felix & Klara
- Kvikmyndataka ársins Óttar Guðnason – Reykjavík Fusion
- Leikmynd ársins Heimir Sverrisson – Vigdís
- Leikstjóri ársins Tinna Hrafnsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson – Vigdís
- Tónlist ársins Mugison – Felix & Klara
Heiðursverðlaun 2026 Þorsteinn Jónsson




