Verðbólgan étur upp rekstrarhagnað Reita
Hagnaður fasteignafélagsins Reita dróst saman um nær 66 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Verðbætur af skuldum félagsins jukust um rúma þrjá milljarða króna og vaxtaberandi skuldir nema nú tæpum 160 milljörðum. Stjórnendur finna fyrir kólnun í hagkerfinu.
Hagnaður fasteignafélagsins Reita nam tæpum tveimur milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 5,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn dróst því saman um 3,8 milljarða króna, eða tæp 66 prósent, þrátt fyrir að leigutekjur félagsins hafi aukist verulega.
Meginástæðan er aukinn fjármagnskostnaður. Hrein fjármagnsgjöld félagsins námu 12,3 milljörðum króna, samanborið við 8,3 milljarða í fyrra. Þar vega þyngst verðbætur af verðtryggðum skuldum, sem jukust úr 4,8 milljörðum í 8,1 milljarð króna.
„Við höfum fundið fyrir þeirri kólnun í hagkerfinu sem sett hefur svip sinn á haustið“
Verðbætur eru sú hækkun sem verður á höfuðstól verðtryggðra lána vegna verðbólgu. Þær eru færðar til gjalda í reikningsskilum þótt þær séu ekki endilega greiddar á sama tímabili.
Leigutekjur aukast en hagnaður minnkar
Leigutekjur Reita námu 14,9 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og jukust um 11,1 prósent …