Meirihluti landsmanna er fylgjandi samfélagsmiðlabanni unglinga samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Sérfræðingur hjá Stafrænni velferð telur að skilgreina þurfi í frumvarpi hvaða þættir miðlanna séu varasamir.
Greint var frá því á Vísi í gær að norðanmenn væru ósáttir við spár veðurfræðinga, sem höfðu spáð súld fyrir bæði norðan og austan. Ræst hefur að mestu úr þessum spám, meira að segja á Austurlandi, þar sem jafnvel má búast við sól í kvöld. Við ræðum við skipuleggjanda Neistaflugs.
Lögregluembætti víða um landið hafa haft í nógu að snúast í nótt. Stórfelld líkamsárás var á Akureyri í nótt og níu voru handteknir þar sem einn var með hníf.
Til skoðunar er að stækka það svæði í miðborginni sem vaktað er með öryggismyndavélum að sögn borgarstjóra. Ráðist verður í nágrannavörsluátak í Reykjavík í kjölfar innbrotahrinu.