Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir farir sínar ekki sléttar, eftir misheppnaðar vegaframkvæmdir á veginum um Kaldármela á Snæfellsnesi í síðustu viku. Hann segir að klæðning sem var lögð á kafla vegarins á fimmtudag hafi þegar verið orðin holótt þegar hann átti aftur leið um veginn á sunnudag.
Hann mun, ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra Borgarbyggðar, funda með forstjóra Vegagerðarinnar á þriðjudag til að ræða framkvæmdina og nauðsynlegar úrbætur.
Kristinn lýsir því í samtali við fréttastofu að hann hafi furðað sig á því þegar hann átti leið um veginn á fimmtudag að klæðningarflokkur væri þar í startholunum. Bæði hefði vegurinn verið óheflaður og auk þess rigning í kortunum.
„Mér finnst þessi vinnubrögð alveg óboðleg,“ segir Kristinn en bætir við að hann þekki verktakann annars ekki nema af góðu. Þá telur hann að ábyrgðin liggi hjá eftirlitsaðila með verkinu.
Til stendur að klæða sex kílómetra kafla á veginum fyrir veturinn, en kaflinn sem var klæddur fyrir helgi er um kílómetri að lengd að sögn Kristins.