Víða verður þurrt veður og bjart með köflum en skýjað að mestu sunnanlands með dálitum skúrum, einkum síðdegis. Þokubakkar gætu látið á sér kræla við norður- og austurströndina. Hlýjast verður á Vesturlandi.
Á morgun má búast við svipuðu veðri en á mánudag er síðan spáð austan golu eða kalda.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Bjart með köflum, en sums staðar dálitlir skúrir á sunnanverðu landinu. Hiti 8 til 16 stig, svalast á Austfjörðum.
Á mánudag:
Austan 3-8 m/s, en 8-13 við suðurströndina. Þurrt og bjart norðanlands, en væta af og til á sunnanverðu landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar skúrir. Hiti 8 til 15 stig.
Á fimmtudag og föstudag:
Vestlæg átt 3-10. Skýjað vestanlands, annars víða bjartviðri. Hiti yfirleitt á bilinu 11 til 16 stig yfir daginn.