Þetta er meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Greint var frá því fyrr í dag að grípa hefði þurft til fjöldatakmarkana í sundlaug Kirkjubæjarklausturs þar sem blíðskaparveður leikur við bæjarbúa og gesti. Rekstraraðili á tjaldstæðinu rekur mannmergðina beint til veðursins á suðvesturhorninu, til rigningar þar og grámyglu.
Í hugleiðingum veðurfræðingsins segir að hæðin suður af landinu sjái um að dæla til okkar mjög röku og hlýju lofti sem á rætur sínar að rekja langt suður í hafi.
Um miðja næstu viku sé útlit fyrir að hæðin fari að þokast til suðurs. Segir veðurfræðingurinn að „þá ætti staðan loksins að breytast hjá okkur.“ Útlit sé fyrir norðlæga átt á föstudag.