Þrátt fyrir að allt stefni í að Demókratar vinni öruggan sigur í baráttunni um fulltrúadeild þingsins stendur Repúblikaninn Mike Johnson, forseti deildarinnar, keikur og hefur ekki misst trúna á hagstæðum úrslitum.
Johnson, sem er einn dyggasti stuðningsmaður Donalds Trump forseta, hélt ræðu á kosningafundi í Virginíu í dag og sagði margt minna á síðustu kosningar.
„Þetta minnir mig á 2024 þegar við unnum allt. Unnum Hvíta húsið, öldungadeildina og fulltrúadeildina.“
Skoðanakannanirnar væru rangar.
„Við munum koma öllum á óvart,“ sagði hann.
Hann taldi úrslitin geta ráðist á um 21 sæti og hvatti Repúblikana til að mæta á kjörstað, enda væri afar mjótt á munum og í síðstu kosningum hafi 10 kosningar ráðist á innan við sex þúsund atkvæðum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti mætti í viðtal í Fox and Friends á fréttastöð Fox News í morgun og tilkynnti að hann ætli að hætta við fyrirhugaða 4 milljarða dala hernaðaraðstoð til Ísraels.
Tímasetningin er óhefðbundin en mögulega skiljanleg þar sem Trump er að reyna að hvetja sitt fólk til að mæta á kjörstað. Fjáraustur til Ísraels er umdeildur á meðan bandarísk heimili berjast í bökkum.
Trump sagði aðstoðina setja ákveðin vopn í hendur Demókrata. Hann sagðist hafa tekið þessa ákvörðun í samráði við Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels, en Ísrael þyrfti ekki á þessum fjármunumn að halda.
Veðmálafyrirtækin Kalshi og Polymarket eru farin að gera sig sífellt meira gildandi í spádómum um úrslit kosninga. Þau þóttu getspök fyrir síðustu kosningar, en hvernig lítur sviðið út núna á kjördag?
Polymarket telur allar líkur á að fulltrúadeildin falli með Demókrötum, eða um 95%. Þeim er spáð rúmlega 230 sætum, en 218 sæti tryggja meirihlutann.
Kalshi er á svipuðum slóðum. Segja 94% líkur á sigri Demókrata sem fengju 241 sæti.
Þegar litið er á öldungadeildina telur Kalshi 75% líkur á að Demókratar nái meirihluta þar og muni enda í 53 sætum af 100. Polymarket er sammála með 53 sæti á Demókrata en metur líkurnar aðeins hærri, eða 77%.
Öldungadeildarkosningarnar sem fylgst verður sérstaklega með á kjördag eru þessar:
Michigan
Flestra augu hafa verið á Michigan þar sem Abdul El-Sayed freistar þess að verja sæti Demókrataflokksins gegn Repúblikananum Mike Rogers sem nýtur stuðnings Trumps forseta.
Síðasta könnun New York Times spáði Al-Sayed 53% gegn 42% Rogers. Veðmálafyrirtækið Polymarket telur um 80% líkur á að Al-Sayed beri sigur úr býtum og yrði þannig fyrsti músliminn til að vinna sæti í öldungadeildinni.
Maine
Demókratar hafa litið Maine hýru auga þar sem Repúblikaninn Susan Collins stóð óvenju höllum fæti. Eftir að þeir þurftu hins vegar að skipta út frambjóðanda í miðri á hefur slagurinn orðið sífellt meira spennandi.
Troy Jackson var með 51% fylgi í könnun NYT á móti 45% Collins, sem hefur oft verið afskrifuð en virðist eiga níu pólitísk líf.
Polymarket telur um 72% líkur á að Jackson beri sigur úr býtum.
Alaska
Ég minntist í morgun á ósætti Repúblikana við því að alnafni sitjandi öldungadeildarþingmanns þeirra hafi fengið að bjóða sig fram, en slagurinn stendur milli Dan Sullivan sem og Demókratans Mary Peltola.
Munurinn milli þeirra í könnun NYT er sjö prósentustig. Peltola mælist með 50% fylgi og Sullivan 43%
Hinn óháði Dan Sullivan er ekki talinn líklegur til sigurs.
Polymarket telur 70% líkur á sigri Peltola.
Ohio
Ohio var lengi sannkallað sveifluríki og mátti oft ráða stöðu mála á landsvísu í úrslitum þar, en síðustu ár hefur það hallast sífellt frekar til hægri.
Sherrod Brown, frambjóðandi Demókrataflokksins, reynir að komast aftur inn í öldungadeildina eftir að hafa tapað sæti sínuí kosningunum 2024. Andstæðingur hans er Jon Husted, sitjandi öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins. Brown er spáð 49% á móti 44% Husteds og Polymarket telur 72% líkur á sigri Browns.
Texas
Rísandi stjarna Demókrataflokksins er James Talarico, þingmaður á ríkisþingi Texas sem er í hörðum slag við hinn vægast sagt umdeilda Ken Paxton. Talarico fer með himinskautum í könnunum, miðað við að Demókratar hafa ekki unnið öldungadeildarslag í ríkinu í tæp 40 ár. Hann mælist með 50% fylgi á móti 43% Paxtons og Polymarket telur 71% líkur á tímamótasigri Talaricos.
Kansas
Þetta er sannarlega óvænt. Í venjulegu árferði ættu Repúblikanar að sigla þessum slag heim án þess að leggja mikið á sig. Nú ber hins vegar svo við að Demókratinn og predikarinn Adam Hamilton er kominn fram úr Roger Marshall, sitjandi öldungadeildarþingmanni Repúblikana. Hamilton mælist með með 49% gegn 44% Marshalls, og Polymarket telur sigurlíkur Demókratans 64%.
Suður-Karólina
Hér er annað ríki sem ætti ekki að vera á þessum lista. Darline Graham, býður sig fram í sæti Lindsey bróður síns sem lést nýlega. Skoðanakannanir spá henni þó aðeins eins prósentustigi meira fylgi en frambjóðanda Demókrata, Annie Andrews. Polymarket telur hins vegar 71% líkur á því að Graham hafi sigur að lokum.
Eins og ég hef sagt hér að neðan er alls óvíst að lokaniðurstaða liggi fyrir í nótt, þótt línur verði vonandi farnar að skýrast. Það þarf þó ekki endilega að vera vísbending um að eitthvað vafasamt sé í gangi, samkvæmt kosningasérfræðingi fréttastofu CBS.
David Becker, sem fer fyrir Center for Election Innovation & Research, rannsóknarstofnun á sviði kosningamála, segir að ef úrslit liggi fyrir í nótt sé næsta víst að meiriháttar bylgja hafi gengið yfir.
Þó sé næsta víst að þeir frambjóðendur sem hrópi snemma og oft um ágalla á kosningum séu þeir sem séu að tapa.
Tíminn frá lokun kjörstaða og fram að því að öll atkvæði hafa verið talin er viðkvæmur þegar kemur að þessu.
„Það er næstum fullvíst að frambjóðendur sem finnst gengi sitt ekki vera gott munu fara að dreifa lygum og upplýsingafölsun til að fylla upp í tómarúmið.“
Becker bætir því við að honum finnist líklegt að Trump forseti muni draga úrslit kosninganna í efa með lygum, líkt og hann gerði eftir að hann tapaði kosningunum 2020.
Talningin tekur miklu lengri tíma en fólk heldur
Hann bætir því við að fólk hafi óraunhæfar hugmyndir um tímann sem tekur að telja öll atkvæði. Það orsakist meðal annars af því að fréttastofur lýsi yfir sigri frambjóðenda löngu áður en búið sé að telja, á grundvelli líkindamódela sem reikni út líklega niðurstöðu miðað við þau atkvæði sem komin eru inn og hvers sé að vænta.
Talning atkvæða sé flókin. Atkvæðaseðlar séu allt of flóknir. Þá séu mismunandi reglur frá einu ríki til annars, meðal annars varðandi meðferð og talningu póstlagðra atkvæða, sem má jafnvel telja ef þau berast löngu eftir kjördag, ef þau eru póstlögð á kjördag eða fyrr.
Becker minnir á eitt: Ef frambjóðendur kvarta undan ferlinu er það vegna þess að þeir sjá fram á tap. Sigurvegarar láta ferlið ekki fara í taugarnar á sér, heldur leyfa því að hafa sinn gang.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna mun gera um 1.000 kosningaeftirlitsmenn út af örkinni til að fylgjast með framgangi kosninganna í öllum 50 ríkjum.
Frá þessu segir í tilkynningu frá ráðuneytinu í morgun, en þetta er í fyrsta sinn sem stjórnvöld kasta svo stóru neti til að koma í veg fyrir ætlað kosningasvindl.
Ráðuneytið hefur síðustu vikur blandað sér af krafti í kosningabaráttuna þar sem það hefur til dæmis krafist þess að þúsundir atkvæða í Kaliforníu verði tekin til hliðar til að ganga úr skugga um hvort þau komi frá óskráðum innflytjendum.
Hæstiréttur vísaði því máli frá í gær.
Þá vísaði alríkisdómari frá kröfu ráðuneytisins um að staðfesta ekki úrslit kosninganna í Alaska ef Repúblikaninn Dan Sullivan yrði velt úr öldungadeildarsæti sínu. Annar Dan Sullivan er í framboði, að einhverju leyti studdur af Demókrötum, en Repúblikanar sögðu þetta gert til að rugla kjósendur af ásettu ráði.
Demókratinn Mary Peltola er nokkuð óvænt með forystu í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar í dag.
Við vonum að fall sé fararheill í kosningunum vestanhafs, því kosningavélar sem eiga að skanna kjörseðla í Westchestersýslu í New York-ríki biluðu strax við opnun flestra kjörstaða þar í morgun.
Í frétt CBS segir að kjósendum hafi verið boðið að greiða atkvæði með hefðbundnum pappírsseðlum sem væru geymdir á öruggum stað þar til málið leysist.
Kjörstaðir hafa nú verið opnaðir víðast hvar á austurströnd Bandaríkjanna, en fyrstu tölur eru ekki væntanlegar fyrr en eftir að fyrstu kjörstöðum verður lokað, klukkan ellefu í kvöld að íslenskum tíma.
Ómögulegt er að segja hvenær lokaniðurstaða mun liggja fyrir, en myndin ætti að vera orðin nokkuð skýr snemma í fyrramálið, nema snurða hlaupi á þráðinn.
Donald Trump segist nokkuð bjartsýnn fyrir gengi Repúblikana þingkosningunum í dag þrátt fyrir að skoðanakannanir og spár séu þeim ekki hliðhollar. Í samtali við New York Post sagði hann: „Ég held að okkur muni ganga stórvel, en ef við vinnum ekki mun ég beita neitunarvaldi á allt.“
Hann sér samt fyrir sér að geta unnið með Demókrötum ef þeir verða hlutskarpari.
„Ég verð herra Neitunarvald ef það gerist. Svo á einhverjum tímapunkti náum við samkomulagi.“
Þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem forsetinn er ekki með meirihlutastuðning á þinginu.
„Þeir senda eitthvað á mig. Ég beiti neitunarvaldi, en svo eftir einn eða tvo mánuði af slíku koma þeir til mín og við komumst að samkomulagi.
Miðkjörtímabilskosningar – midterms – eru um margt frábrugðnar kosningum þegar forsetaembættið er líka undir. Fyrst ber að nefna að kjörsókn er mun minni í miðkjörtímabilskosningum eins og sést í myndritinu hér að neðan.
Það eru gömul sannindi og ný að flokkur forsetans kemur illa út úr kosningunum á miðju kjörtímabili hans. Sem dæmi má nefna að í 38 af síðustu 42 miðkjörtímabilskosningum (frá upphafi núverandi tveggja flokka kerfis) tapaði flokkur forsetans fylgi í fulltrúadeildinni.
En hvaða embætti eru undir?
- Fulltrúadeild þingsins - Öll 435 sætin eru undir. Kjörtímabil í deildinni eru tvö ár.
- Öldugadeild þingsins - 35 af 100 sætum. Kjörtímabil er sex ár og kosið um um það bil þriðjung sæta í hverjum þingkosningum.
- Ríkisstjórar - 39 ríki kjósa sér ríkisstjóra í ár. Skoðanakannanir gefa til kynna að Demókratar gætu átt fleiri ríkisstjóra eftir kosningarnar í dag, en Repúblikanar í fyrsta sinn í áraraðir.
- Ríkisþing - Kosið er í 46 ríkjum um 6.139 þingsæti.
- Önnur mál - Einstök ríki kjósa um hin ýmsu mál. Meðal annars taka Kaliforníubúar afstöðu til nýrra laga um sérstakan hátekjuskatt á milljarðamæringa. Þá er víða kosið um nýja kjördæmaskipan, lögmæti þungunarrofs, gagnaver og fleira. Þá gera íbúar Idaho upp á milli sex valkosta um hvaða byssutegund verður opinber byssa ríkisins.
Eins og fram hefur komið stendur baráttan um yfirráð yfir deildum þingsins. Við fórum yfir helstu sviðsmyndir í málinu í fréttaskýringu fyrir stuttu.
Stjórnskipan Bandaríkjanna gefur forsetanum gríðarmikið vald, sérstaklega þegar skautun stjórnmálanna er eins hrópandi og nú er, en löggjafinn hefur þó tól og tæki til að standa í vegi fyrir embættisverkum forsetans.
Ef svo fer, eins og skoðanakannanir gera ráð fyrir, að Demókratar nái markmiðum sínum um meirihluta í báðum deildum eru litlar líkur á að þeir geti staðið í lagasetningu. Forsetinn getur beitt neitunarvaldi, og hefur ítrekað að hann muni beita því óspart ef til komi.
Demókratar munu geta stofnað rannsóknarnefndir og fleira til að halda aftur af Trump og tefja embættisverk hans.
Svo verður þingið líka kjörinn vettvangur fyrir Demókrata að setja allra handa málefni á dagskrá fyrir forsetakosningarnar 2028.
Aldrei hafa fleiri kosið utan kjörfundar fyrir kjördag í miðtímabilskosningum (e. midterms) í Bandaríkjunum, það er þegar ekki er kosið til forseta.
Rúmlega 57 milljón atkvæði höfðu borist í gær, samanborið við 46 milljónir fyrir fjórum árum. Erfitt er að gefa sér nokkuð um hvor flokkur gæti notið góðs af því, en fleiri skráðir Demókratar hafa kosið en Repúblikanar.
Góðan daginn og velkomin á fréttavaktina á kjördegi í Bandaríkjunum.
Þorgils Jónsson heiti ég og mun fylgja ykkur í dag með helstu fréttir og fróðleik í bland. Það sem helst verður einblínt á er baráttan um yfirráð í öldungadeild þingins, þar sem Repúblikanar, samflokksmenn Donalds Trumps forseta, freista þess að halda meirihluta sínum.
Flestar spár gera þó ráð fyrir að Demókratar nái að velta þeim úr sessi í krafti megnrar óánægju almennings með stjórn efnahagsmála.
Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir fréttamaður fór yfir sviðið í gær. Þar kemur meðal annars fram að Demókratar eru með forystu í fimm af þeim sjö ríkjum sem líklegust eru til að ríða baggamuninn í öldungadeildinni.