Jíhadistar hafa fellt Sadio Camara, varnarmálaráðherra hershöfðingjastjórnarinnar í Malí. Samkvæmt upplýsingum frá heimildarmönnum ríkisstjórnar Malí lést Camara af völdum bílsprengju sem skilin var eftir fyrir utan heimili hans nálægt höfuðborginni Bamako.
Ættingi Camara, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði í samtali við fjölmiðla að ráðherrann hefði verið drepinn ásamt að minnsta kosti þremur fjölskyldumeðlimum sínum í bílsprengjunni sem jihadistahópurinn kom fyrir.
Átökin hófust í gær þegar jihadistar og uppreisnarhópar hófu samhæfðar árásir út um allt Afríkuríkið, þar á meðal á vígi hershöfðingjanna í Kati nálægt höfuðborginni. Camara og aðrir hershöfðingjar innan stjórnarinnar búa í Kati.
Vígahópar gengust við árásunum í gær
Þegar fyrst spurðist til átakanna lá ekki fyrir hver var að verki. Síðdegis í gær steig jíhadistahópur sem tengist hryðjuverkasamtökunum al-Kaída fram ásamt uppreisnarmönnum úr röðum Túarega og sögðust hafa staðið sameiginlega að árásunum. Sérfræðingar segja þær á meðal þeirra umfangsmestu í landinu frá árinu 2012.
Ráðist hefur verið á herstöðvar og aðra lykilinnviði í Bamako og víðar. Vitni hafa lýst hörðum átökum, þyrlur hafa sést á lofti og vegum hefur verið lokað.
Malí hefur glímt við versnandi öryggisástand í meira en áratug og hafa vígahópar, uppreisnarmenn og glæpasamtök lengi barist um yfirráð á stórum svæðum landsins.