Um norðvestanvert landið er spáð hvössum og byljóttum vindi frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun.
Þetta kemur fram í ábendingum til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Þar segir að hviður geti staðbundið farið í 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar.
Þá er varað við sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls.