Í dag, laugardag, og fram að hádegi á morgun má búast við hvössum vindstrengjum við fjöll á sunnanverðum Austfjörðum, segir í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Hviður geta náð allt að 25 m/s og getur slíkur vindur verið varasamur fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind.
Í athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að í dag verði norðan og norðvestan 5-13 m/s, en 10-18 austantil, hvassast á sunnanverðum Austfjörðum. Veðurstofan varar einnig ökumenn við snörpum vindhviðum í vindstrengjum á þessum slóðum.
Það verður rigning eða súld með köflum á Norður- og Austurlandi, en dregur hægt úr vætu þegar líður á daginn. Léttskýjað í öðrum landshlutum, en líkur á þokulofti við norðurströndina. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast sunnan- og vestantil.
Á morgun verður norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en norðvestan 8-13 austanlands framan af degi. Skýjað norðaustantil og sums staðar dálítil væta, en annars bjart veður. Áfram líkur á þokulofti við norðurströndina. Hlýnar ívið í veðri.
Á mánudag og þriðjudag er útlit fyrir hægar breytilegar áttir. Bjart með köflum víða um land, en sums staðar skýjað á norðanverðu landinu. Líkur á stöku síðdegisskúrum. Hiti yfirleitt á bilinu 10 og 18 stig.
Á miðvikudag gera spár ráð fyrir dálítilli vætu í flestum landshlutum, en á fimmtudag er spáð frekar vætusömu veðri.