Hundaeigandi sem keypt hafði þjónustu hundapassara á höfuðborgarsvæðinu og trúað þeirri konu fyrir hundi sínum á meðan hún var að heiman fékk símtal frá lögreglunni, þess efnis að hundurinn væri í umsjá lögreglunnar. Hundapassarinn væri í þannig ástandi að hún væri ekki fær um að sinna hundinum. Frá þessu er greint í Facebook-hópnum Hundasamfélagið. Hundurinn hafði sést ganga laus um hverfið í langan tíma, án taums eða beislis. Einnig segir í færslu eiganda dýrsins:
Varað við hundapassara á höfuðborgarsvæðinu – Svaf áfengissvefni þegar eigandinn kom heim og aðkoman var ófögur