Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur ekki æskilegt að komið verði upp gagnaverum á fyrirhuguðum stað á Hólmsheiði en hugmyndir hafi verið uppi um það í töluverðan tíma. Vísar eftirlitið til vatnsverndarsjónarmiða en einnig þess að gagnaver á heiðinni muni óhjákvæmilega valda föngum í fangelsinu þar of miklu ónæði.Þetta kemur fram í umsögn Heilbrigðiseftirlitsins sem var tekin fyrir á síðasta fundi heilbrigðisnefndar Reykjavíkur.
Vara við hugmyndum um gagnaver nærri fangelsinu á Hólmsheiði