Í tilkynningu félaganna kemur fram að hopun jökulsins undanfarin ár hafi valdið því að gil og sprungur hafi opnast á svæðinu. Á kaflanum milli Baldvinsskála og Fimmvörðuhálsskála hafi jafnframt myndast brattar brekkur og skriður þar sem áður hafi mátt finna snjó eða jökulís.
Þá vara félögin sérstaklega við snjóbrúm sem komið hafa í ljós eftir að vetrarsnjóinn tók upp. Undir þeim renna jökulár og getur verið stórhættulegt að fara yfir þær eða nálgast þær.
Félögin hvetja göngufólk til að leggja ekki af stað yfir hálsinn nema það sé vel búið útivistarbúnaði og fatnaði og hafi kynnt sér aðstæður fyrir fram. Ekki sé ráðlagt að ferðast eitt á þessari leið heldur er mælt með því að fara í hópi, helst með reyndum leiðsögumanni sem þekki svæðið.
Félögin sem koma að rekstri og viðhaldi leiðarinnar vinni nú sameiginlega að því að finna nýja og öruggari leið fram hjá þeim köflum þar sem hættan hefur skapast. Á meðan er skorað á ferðafólk að sýna aðgát, kynna sér aðstæður vel og hafa öryggi ávallt í fyrirrúmi.