Erlendur ferðamaður sem lét lífið á Fimmvörðuhálsi í gær var á göngu með syni sínum. Hann var sex kílómetrum fyrir ofan Skóga þegar hann missti meðvitund.
Að sögn Magnúsar Ragnarssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi, reyndu göngumenn á svæðinu endurlífgunartilraunir á meðan beðið var eftir viðbragðsaðilum.
Á sjötugsaldri
Maðurinn var á sjötugsaldri. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Greint var frá því í gær að þyrla Landhelgisgæslunnar hefði verið send að Fimmvörðuhálsi vegna veikinda mannsins. Lögregla, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir tóku einnig þátt í aðgerðunum.
Aðspurður kveðst Magnús ekki geta gefið upp þjóðerni mannsins eða eðli veikinda hans.