Valdimar varar við að leita sökudólgs í Tækniskólamálinu
Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, lýsti vonbrigðum með niðurstöðu Tækniskólamálsins á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að ljóst var að Tækniskólinn kæmi ekki í bæinn. Hann hefur ekki viljað svara spurningum um málið.
Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknar í bænum, varaði við því í ræðu á bæjarstjórnarfundi að leita sökudólgs vegna þess að áform um uppbyggingu Tækniskólans í Hafnarfirði gengu ekki eftir. Hann sagði verkefnið hafa verið stórt og flókið og samninga við lóðarhafa tekið lengri tíma en gert hefði verið ráð fyrir.
Valdimar sat sjálfur í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar meðan málið var í vinnslu og var bæjarstjóri frá 2025 fram að sveitarstjórnarkosningum síðastliðið vor. Þegar Heimildin leitaði svara hans um lyktir málsins, meðal annars um ákvarðanir hans sem bæjarstjóra, vildi hann ekki svara spurningunum.
Í ræðunni sagði Valdimar mikilvægt að nálgast niðurstöðuna af sanngirni. „Þegar stór verkefni ná ekki fram að ganga eins og stefnt var að er auðvelt að reyna að leita sökudólgi eða einni einfaldri skýringu. Veruleikinn er sjaldnast þannig,“ sagði hann.