Björgunarsveitir uppsveita Árnessýslu hafa verið kallaðar út vegna einstaklings sem fótbrotnaði við Háafoss, innst í Þjórsárdal.
„Hann er á slæmum stað og það þarf aukinn mannskap til að koma honum þaðan í sjúkrabíl,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is.
Líða mannsins eftir atvikum
Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafi einnig verið kallaðar út til að aðstoða.
Hann segir að búið sé að búa um manninn og að líðan hans sé eftir atvikum.